Fótbolti

Barcelona slapp með skrekkinn gegn liði úr þriðju deild

Smári Jökull Jónsson skrifar
Ansu Fati fagnar hér sigurmarki sínu í kvöld.
Ansu Fati fagnar hér sigurmarki sínu í kvöld. Vísir/Getty

Barcelona slapp heldur betur með skrekkinn í spænska bikarnum í kvöld þegar liðið mætti þriðjudeildar liðinu CF Intercity. Börsungar unnu 4-3 eftir framlengingu og er því komið áfram.

Það voru ekki margir sem bjuggust við því að CF Intercity yrði mikil fyrirstaða fyrir stórlið Barcelona í kvöld en Intercity leikur í þriðju efstu deild á Spáni. 

Barcelona hvíldi nokkra af sínum lykilmönnum og stuðningsmenn hugsuðu sér eflaust gott til glóðarinnar þegar Ronald Araujo kom liðinu í 1-0 strax á fyrstu mínútu. Staðan í hálfleik var 1-0 en síðari hálfleikur átti heldur betur eftir að verða fjörugur.

Heimamenn jöfnuðu á 59.mínútu með marki Oriol Soldevila en átta mínútum síðar kom Ousmane Dembele Barcelona yfir á ný. Aftur jafnaði Soldevila fyrir lið Intercity en varamaðurinn Raphinha kom Barca yfir í þriðja sinn á 77.mínútu.

Þegar fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma fullkomnaði Soldevila þrennu sína og því varð að framlengja leikinn.

Í framlengingunni var aðeins eitt mark skorað. Ansu Fati, sem einnig hafði komið inn sem varamaður, skoraði undir lok fyrri hluta framlengingarinnar og tryggði Barcelona sæti í 16-liða úrslitum Copa Del Rey. 

Fyrr í kvöld tryggði Atletico Madrid sér sæti í næstu umferð þegar liðið lagði Real Oviedo 2-0 á útivelli með mörkum frá Marcos Llorente og Pablo Barrios Rivas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×