Fótbolti

Chelsea kaupir Benoit Badiashile frá Monaco

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Benoît Badiashile er genginn í raðirChelsea.
Benoît Badiashile er genginn í raðirChelsea. Vísir/Getty

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur gengið frá kaupum á franska miðverðinum Benoit Badiashile frá Monaco.

Badiashile hefur skrifað undir sjö og hálfs árs langan samning við Lundúnaliðið og verður því í herbúðum þess til ársins 2030. Hann er aðeins 21 árs gamall, en hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið fimm tímabil í frönsku úrvalsdeildinni.

Badiashile á að baki 135 deildarleiki fyrir Monaco þar sem hann hefur skorað sex mörk. Þá lék hann einnig sína fyrstu leiki fyrir franska A-landsliðið í september á síðasta ári.

Chelsea greiðir 35 milljónir punda fyrir leikmanninn, en það samsvarar rétt rúmum sex milljörðum íslenskra króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×