Innlent

Berg­þór segir Katrínu þjakaða af hatur­s­orð­ræðu­blæti

Jakob Bjarnar skrifar
Bergþór Ólason segir afstöðu Katrínar Jakobsdóttur til hatursorðræðu afar valkvæða og þannig vart marktæka.
Bergþór Ólason segir afstöðu Katrínar Jakobsdóttur til hatursorðræðu afar valkvæða og þannig vart marktæka. vísir/vilhelm

Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, telur Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, seka um tvískinnung og skinhelgi þegar mannréttindi eru annars vegar.

Þetta segir Bergþór í harðorðum pistli sem birtist í Morgunblaðinu í morgun.

„En orð forsætisráðherrans, Katrínar Jakobsdóttur, eru nú sem oft áður hjóm eitt. Hatursorðræða er það bara þegar tilteknir hópar verða fyrir henni. Það er bara hatursorðræða þegar flokkurinn hennar og samflokksmenn verða fyrir barðinu á óvæginni umræðu. Það er alls ekki hatursorðræða þegar Sigmundur Davíð er settur í félag með fjöldamorðingjum og illmennum í kennslustund, á kosningaári.“

Hatursorðræða en bara stundum

Bergþór vísar hér í mál sem komst í fréttir í síðustu viku þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins birti mynd sem honum barst úr kennslustund í Verslunarskóla Íslands þar sem honum var stillt upp á glæru ásamt fasistunum Benito Mussolini og Adolf Hitler.

„Glæran var sett saman af kennara sem vill svo til að er líka frambjóðandi Vinstrihreyfingarinnar–græns framboðs á sveitarstjórnarstiginu – nokkuð sem gæti hafa litað sýn hans við gerð glærunnar,“ segir Bergþór.

Hann segir að tveir aðilar hafi ekki talið vert að fordæma þessa framsetningu, skólameistari Verzlunarskólans og svo Katrín.

„Sami forsætisráðherra og hefur sölsað undir sig alla mannréttindamálaflokka í stjórnarráðinu og talar sig hása um mikilvægi þess að koma í veg fyrir hvers kyns hatursorðræðu í íslensku samfélagi. Ráðherrann ætlar meira að segja að skylda stóra hópa á alls konar námskeið í hatursorðræðu,“ segir Bergþór.

Hentistefna í hatursorðræðuefnum

Þingflokksformaðurinn telur Katrínu varla marktæka, orð hennar hræsnisfull og hjómið eitt: 

„Hatursorðræða er það bara þegar tilteknir hópar verða fyrir henni. Það er bara hatursorðræða þegar flokkurinn hennar og samflokksmenn verða fyrir barðinu á óvæginni umræðu. Það er alls ekki hatursorðræða þegar Sigmundur Davíð er settur í félag með fjöldamorðingjum og illmennum í kennslustund, á kosningaári,“ segir Bergþór og gefur minna en ekkert fyrir það að Katrín sé sjálfri sér samkvæm. Allt hennar tal í þessum efnum litist af hentistefnu.

„Þetta hatursorðræðublæti ráðherrans, sem löngu er orðið lúið, missir endanlega marks þegar öllum verður ljóst að reglurnar eru ólíkar eftir því hvar þú stendur í stjórnmálum eða hvers kyns þú ert.“


Tengdar fréttir

Skólastjóri vísar ásökunum um innrætingu kennara í Verzló á bug

Skólastjóri Verzlunarskóla Íslands segir það klaufalegt að þingmaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi verið settur í hóp með Hitler og Mussolini á glæru í kennslustund en að málið hafi verið tekið úr samhengi. Sigmundur segir atvikið skýrt dæmi um innrætingu og áróður af hálfu kennara. Skólastjóri vísar því á bug og segist munu ræða við Sigmund. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×