Lýsa yfir stríði á hendur blóðnefsvefurum Atli Ísleifsson skrifar 17. janúar 2023 07:54 Blóðnefsvefari er sennilega fjölskipaðasta fuglategund heims, en hún lifir í Afríku sunnan Sahara. Getty Miklir þurrkar í Kenía á síðustu misserum hafa torveldað grasvöxt í landinu og hefur ein afleiðing þess verið að algengar fuglategundir hafa leitað annarra leiða til að slá á hungrið.
Guardian segir frá því að blóðnefsvefarinn (l. Quelea quelea) hafi sökum þurrkanna herjað á kornekrur og þannig eyðilagt uppskeru fjölda bænda. Áætlað er að fuglinn sé meðal annars búinn að eyðileggja rúmlega 120 hektara af um hektrara hrísgjónaökrum landsins. Sjá bændur fram á að glata um 60 þúsund tonnum af uppskerunni vegna innrásar fuglsins á akrana. Staðan hefur nú fengið stjórnvöld í Kenía að bregðast við. Með aðstoð meindýraeitursins fenþíóns er vonast til að hægt verði að fækka blóðnesvefurum um sex milljónum og þannig bjarga hluta uppskerunnar. Ýmsum aðferðum er beitt af kenískum bændum til að reyna að bjarga uppskerunni.Getty Sérfræðingar hafa þó varað við að notkun eitursins kunni að hafa neikvæðar afleiðingar fyrir ýmsa ránfugla og aðrar dýrategundir sem lifa á svæðinu. Á Vísindavef Háskóla Íslands segir að blóðnefsvefari sé sennilega fjölskipaðasta fuglategund heims. Tegundin lifir í Afíku sunnan Sahara. „Náttúruleg fæða hans eru grasfræ en þegar fæðuframboð er takmarkað leitar hann á ræktarlönd bænda og gengur þá eins og engisprettufaraldur þar yfir og veldur mikilli eyðileggingu,“ segir á Vísindavefnum um blóðnefsvefarann. Drónar hafa meðal annars verið notaðir til að fæla fugla í burtu.Getty
Kenía Fuglar Dýr Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Alþjóðaglæpadómstólinn vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Fleiri fréttir Alþjóðaglæpadómstólinn vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Sjá meira