Sport

Sjáðu tenniskappa brjóta þrjá spaða á 25 sekúndum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tennisspaðarnir voru ekki óhultir fyrir Alexander Bublik.
Tennisspaðarnir voru ekki óhultir fyrir Alexander Bublik.

Tenniskappinn Alexander Bublik var eitthvað illa fyrirkallaður í leik gegn Gregoire Barrere á ATP móti og lét reiði sína bitna á tennisspöðum. 

Bublik braut nefnilega þrjá spaða í leiknum og það á aðeins 25 sekúndum. Atvikið átti sér stað í oddalotu í þriðja settinu.

Eftir að hafa lent 6-0 undir lamdi Bublik spaða sínum í jörðina í þrígang meðan áhorfendur bauluðu á Kasakann.

Bublik var ekki hættur og eftir að fór af velli fann hann annan spaða sem fékk svipaða meðferð. Hann tók svo þriðja spaðann og barði honum fjórum sinnum í jörðina.

Eftir þetta 25 sekúndna æðiskast hélt Bublik áfram að spila. Hann náði sér í þrjú stig í oddalotunni en tapaði henni, 7-3.

Æðiskastið hjá Bublik má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Tenniskappi brýtur þrjá spaða



Fleiri fréttir

Sjá meira


×