Handbolti

Fram fór létt með HK

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þórey Rósa var frábær í liði Fram í kvöld.
Þórey Rósa var frábær í liði Fram í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Fram vann einstaklega þægilegan 13 marka sigur á HK í Olís deild kvenna í handbolta, lokatölur 39-26.

Gestirnir úr Kópavogi hafa aðeins unnið einn leik á tímabilinu og því var í raun aðeins spurning um hversu stór sigurinn yrði. Munurinn var 13 mörk í hálfleik og þannig hélst hann út leikinn.

Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði 9 mörk í liði Fram og var markahæst. Þar á eftir kom Kristrún Steinþórsdóttir.

Kristín Guðmundsdóttir og Inga Dís Jóhannsdóttir voru markahæstar í liði HK með 5 mörk hvor.

Eftir sigur kvöldsins er Fram áfram í 4. sæti, nú með 19 stig. HK er á botni deildarinnar með 2 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×