Innlent

Leita öku­manns sem stakk af

Árni Sæberg skrifar
Slysið varð á gatnamótum Hrafnsgötu og Burknagötu í Reykjavík, neðan við Landspítalann á Hringbraut.
Slysið varð á gatnamótum Hrafnsgötu og Burknagötu í Reykjavík, neðan við Landspítalann á Hringbraut. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifreiðar sem ók á gangandi vegfaranda á gatnamótum Hrafnsgötu og Burknagötu í Reykjavík í gærmorgun. Ökumaðurinn nam staðar og ræddi við vegfarandann en stakk síðan af frá vettvangi. Vegfarandinn er töluvert slasaður.

Slysið varð neðan við Landspítalann á Hringbraut á níunda tímanum í gærkvöldi, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Þar segir að við atvik sem þetta sé mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið.

Þá sé sömuleiðis áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×