Handbolti

„Maður þarf að þora að fá höggin“

Kristín Björk Ingimarsdóttir skrifar
Andri Snær var svekktur eftir leikinn í dag.
Andri Snær var svekktur eftir leikinn í dag. Vísir/Getty

Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA/Þórs, var svekktur eftir þriggja marka tap á móti Stjörnunni í Olís deild kvenna í handbolta. KA/Þór átti erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik en náðu að komast á lagi í seinni en það dugði ekki til. Lokatölur 19-16. 

„Ég er súr. Ég er súr með það hvernig við spiluðum sóknina í fyrri hálfleik. Við skorum sex mörk sem var dapurt. Við áttum að gera mun betur þar, sem er svekkjandi þar sem að vörnin var í raun og veru frábær allan leikinn. Mér fannst við vera með góðan þéttleika og góða markvörslu frá Mateu. Við áttum að gera betur, við förum með fimm vítaköst og maður er svekktur þegar við förum illa með svona mörg færi.“

KA/Þór spiluðu ragan sóknarleik í fyrri hálfleik og skoruðu einungis sex mörk. 

„Í fyrri hálfleik vorum við ekki að fara nógu vel inn í okkar árásir. Við vorum hikandi og í raun og veru með hægt tempó. Það sem við gerðum síðustu tuttugu var að þora að hlaupa aðeins, við vorum með mun meiri áræðni. Við hefðum átt að fá heilsteyptari leik.“

Þær mættu töluvert ákveðnari í seinni hálfleikinn og náðu að minnka muninn hægt og rólega. 

„Við vorum með ákveðnar breytingar en fyrst og fremst snérist þetta um það að við þurftum hugafarsbreytingu. Eins og ég segi aftur, Stjarnan er með frábært lið og ótrúlega líkamlega sterkar. Maður þarf að hafa hugrekki til að spila sókn á móti þessari vörn. Þær eru grjótharðar og maður þarf að þora að fá höggin, þetta snýst svolítið mikið um það.“

Andri vonar að liðið endurheimti mikilvæga leikmenn úr meiðslum fyrir næsta leik. 

„Við verðum fyrst og fremst að eiga góða æfingaviku. Við eigum Selfoss næst og við vonandi endurheimtum einhverja leikmenn úr meiðslum og verðum klárar í slaginn.“


Tengdar fréttir

Leik lokið: Stjarnan - KA/Þór 19-16 | Stjarnan ekki í vandræðum með vængbrotna Akureyringa

Stjarnan tók á móti KA/Þór í Olís-deild kvenna í dag. Leikurinn fór hægt af stað og var varnarleikur beggja liða í aðalhlutverki. Það var lítið skorað á fyrstu mínútunum en leiddu Stjörnukonur með fimm mörkum, 11-6 í hálfleik. KA/Þór mætti betur í seinni hálfleik en tókst ekki að koma sér almennilega inn í leikinn og vann Stjarnan með þremur mörkum, 19-16. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×