Innlent

Spennufíklar geri sig klára fyrir sviflínurnar úr Kömbunum

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
  Hallgrímur Kristinsson, framkvæmdastjóri verkefnisins að kynna það í opnu húsi hjá D-listanum í Hveragerði.
Hallgrímur Kristinsson, framkvæmdastjóri verkefnisins að kynna það í opnu húsi hjá D-listanum í Hveragerði. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Spennufíklar geta nú látið sig fara að hlakka til því nú styttist óðum í að hægt verði að renna sér í tveimur sviflínum úr kömbum niður að þjónustuhúsinu Reykjadal við Hveragerði. Á næsta ári verðu svo opnuð sleðabraut á sömu leið.

Hallgrímur Kristinsson frá „Mega Zipline Iceland” var gestur á opnum fundi sjálfstæðismanna í Hveragerði nýlega þar sem hann kynnti starfsemi fyrirtækisins og þá staðreynd að í júní í sumar verður sviflínan úr kömbunum niður í Reykjadal opnuð almenningi. Nú þegar er búið að bóka stóra hópa í línuna og mikill áhugi og spenna fyrir verkefninu hjá erlendum ferðaskrifstofum.

„Já, við eru loksins að fara að opna skemmtilegustu afþreyingu landsins og það er sviflínan, „Mega Zipline”, sem verður langstærsta og skemmtilegasta sviflína landsins og ég vil meina skemmtilegasta afþreying á landinu öllu. Þetta verða tvær kílómetra línur, sem ná úr kömbunum og alla leið niður að Árhólmum við þjónustuhúsið í Reykjadal og þar verður einnig afgreiðslan okkar og þar tökum við á móti fólki,” segir Hallgrímur Kristinsson, framkvæmdastjóri verkefnisins.

Hallgrímur segir að þeir, sem munu þora að fara í ferð munu upplifa stórkostlegt landslag á leiðinni niður.

„Það er alveg magnað að vera á þessu svæði og hafa reykinn stígandi upp úr öllum hlíðum og við vitum öll hvað það eru fallegar gönguleiðir þarna í kring, þannig að það er hægt að gera góðan dag með því að ganga upp í Reykjadal, baða sig, ganga þar upp eða hjóla og koma svo og taka eina bunu í lok dags,” segir Hallgrímur.

Og næsta sumar, sumarið 2024 er ætlunin að opna sleðabraut á sömu slóð og línurnar fáist leyfi til þess.

„Þá ertu komin með risastórt afþreyingarsvæði fyrir alla fjölskylduna í Hveragerði. Bæjarfélagið er frábærlega staðsett fyrir svona starfsemi, bæði fyrir það vera með mjög fallegt sveitarfélag og þá er það líka einstaklega vel staðsett. Bæjarfélagið er aðeins út fyrir borgina en á Suðurlandi þar sem að við vitum að mesta traffíkina af ferðamönnum er, og svo er þetta auðvitað auðvelt fyrir Íslendinga, sem búa á svæðinu,” segir Hallgrímur enn fremur.

Ef allt gengur upp þá verður sleðabraut opnuð á sama stað og sviflínurnar sumarið 2024.Aðsend

Heimasíða fyrirtækisins



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×