Fótbolti

Alfons lék síðasta hálftímann í tapi gegn PSV

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Alfons í baráttunni við Fabio Silva í dag.
Alfons í baráttunni við Fabio Silva í dag. vísir/Getty

Alfons Sampsted er að koma sér hægt og bítandi inn í hollenska boltann eftir að hafa gengið í raðir Twente á dögunum.

Alfons hóf leik á varamannabekknum í dag þegar liðið heimsótti stórlið PSV Eindhoven.

Honum var skipt inná eftir rúmlega klukkutíma leik en þá var staðan orðin 2-1, heimamönnum í vil.

Ungstirnið Xavi Simons bætti einu marki við og lokatölur því 3-1 fyrir PSV Eindhoven.

Alfons og félagar í 5.sæti deildarinnar og hefðu getað jafnað PSV að stigum með því að vinna leikinn í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×