Fótbolti

Hildur og María lögðu topp­liðið

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úr leik dagsins.
Úr leik dagsins. Twitter@FortunaVrouwen

Hildur Antonsdóttir og María Catharina Ólafsdóttir Gros voru í byrjunarliði Fortuna Sittard sem vann 2-1 sigur á toppliði FC Twente.

Anna Krol, leikmaður Sittard, vill eflaust gleyma fyrri hálfleiknum en hún brenndi af vítaspyrnu og skoraði sjálfsmark eftir að Caitlin Dijkstra fékk að líta rauða spjaldið og toppliðið því manni færri lungann úr leiknum.

Hildur nældi sér í gult spjald í síðari hálfleik áður en Tessa Wullaert jafnaði metin úr vítaspyrnu. Það var svo Hanna Huizenga sem skoraði sigurmarkið í uppbótartíma og tryggði Sittard mikilvægan 2-1 sigur.

Íslendingaliðið er átta stigum á eftir Ajax sem situr í 2. sæti deildarinnar en efstu tvö sætin veita þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Þá á Ajax leik til góða og því erfitt að sjá liðið misstíga sig svo hrapalega að Sittard komist upp fyrir það í töflunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×