Körfubolti

Martin snýr aftur í stórleik í kvöld

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Martin Hermannsson leikur sinn fyrsta leik í tíu mánuði í kvöld.
Martin Hermannsson leikur sinn fyrsta leik í tíu mánuði í kvöld. getty/Sonia Canada

Körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson spilar í kvöld sinn fyrsta leik fyrir Valencia eftir krossbandsslit.

Martin er kominn til baka eftir að hafa slitið krossband í hné í leik með Valencia í maí. Hann er byrjaður að æfa á fullu og á Twitter-síðu sinni birti Valencia myndband af honum skjóta á körfu.

Martin byrjar ekki á neinum smá leik, heldur gegn Real Madrid í EuroLeague. Real Madrid er í 3. sæti deildarinnar en Valencia í því tíunda. Samherjar Martins hafa tapað þremur leikjum í röð í EuroLeague og alls tapað fjórtán en unnið þrettán í vetur.

Martin, sem er 28 ára, er á sínu þriðja tímabili með Valencia en hann kom til liðsins frá Alba Berlin 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×