Körfubolti

Martin í fyrsta skipti í leik­manna­hópi Valencia sem tapaði fyrir Real Madrid

Smári Jökull Jónsson skrifar
Martin hitar hér upp fyrir leikinn gegn Real í kvöld.
Martin hitar hér upp fyrir leikinn gegn Real í kvöld. Vísir/Getty

Martin Hermannsson var í kvöld í fyrsta skipti í leikmannahópi Valencia síðan hann sleit krossband í maí á síðasta ári. Valencia beið lægri hlut gegn Real Madrid í leiknum.

Martin meiddist í lok maímánuðar í fyrra og strax varð ljóst að um krossbandsslit var að ræða. Hann hefur því ekkert getað leikið með Valencia á tímabilinu og ekki heldur með íslenska landsliðinu í baráttu þeirra um sæti á heimsmeistaramótinu sem lauk á sorglegan hátt á dögunum.

Eins og áður segir var Martin í leikmannahópi Valencia í kvöld. Leikurinn var æsispennandi en Martin kom ekkert við sögu heldur sat á bekknum allan tímann.

Leikurinn í kvöld var spennandi. Real Madrid leiddi með níu stigum í hálfleik en í seinni hálfleik kom Valencia til baka og komst yfir í þriðja leikhluta. Real náði þó yfirhöndinni á ný og tryggði sér að lokum 95-91 sigur

Þó Martin hafi ekki komið við sögu í leiknum í kvöld eru það gríðarlega ánægjuleg tíðindi að hann sé mættur á gólfið á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×