Fótbolti

Patrik hafði betur gegn Kristali í norska bikarnum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Patrik Sigurður Gunnarsson hélt hreinu gegn Rosenborg.
Patrik Sigurður Gunnarsson hélt hreinu gegn Rosenborg. Twitter@vikingfotball

Rosenborg er úr leik í norsku bikarkeppninni í fótbolta eftir tap gegn Viking Stavanger í 16-liða úrslitum keppninnar í kvöld.

Íslenski sóknarmaðurinn Kristall Máni Ingason var í byrjunarliði Rosenborg í kvöld og markvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson stóð á milli stanganna hjá Viking.

Kristali var skipt af velli á 69.mínútu en nokkrum mínútum áður höfðu heimamenn í Viking komist í 2-0 með mörkum á 64. og 66.mínútu.

Ísak Snær Þorvaldsson er einnig á mála hjá Rosenborg en var ekki í leikmannahópi liðsins í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×