Innlent

Vilja að Ísland fari að fordæmi Bandaríkjamanna og heimili Naloxone í lausasölu

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Hafrún Elísa Sigurðarsdóttir er teymisstýra skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum. Hún vill auka aðgengi að Naloxone nefúðanum.
Hafrún Elísa Sigurðarsdóttir er teymisstýra skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum. Hún vill auka aðgengi að Naloxone nefúðanum. Rauði krossinn

Matvæla-og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur heimilað nefúðann Narcan nalaxone í lausasölu til að mæta þeirri alvarlegu ógn sem ópíóðafaraldurinn er. Teymisstjóri skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum bindur vonir við að Ísland feti sömu slóð. Rauði krossinn dreifði á síðasta ári hátt í sex hundruð stykkjum af nefúðanum hér á landi.

Narcan er notað sem neyðarmeðferð við ofneyslu ópíóða og en ákvörðun Lyfjaeftirlits Bandaríkjanna gerir það að verkum að einstaklingar munu innan tíðar getað nálgast úðann í apótekum og matvöruverslunum, án lyfjaávísunar. Fleiri en þúsund Bandaríkjamenn hafa látist af völdum ofneyslu ópíóða á síðasta ári. 

Sjá nánar: FDA heimilar lausasölu Naloxone lyfsins Narcan

Hafrún Elísa Sigurðardóttir er teymisstýra skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum.

„Við fögnum því auðvitað að það sé verið að opna á það að Naloxone sé lausasölulyf í Bandaríkjunum og við teljum alveg gríðarlega mikilvægt að Naloxone hérna á Íslandi verði líka lausasölulyf þar sem fólk getur bara farið í apótek og keypt nefúðann.“

Hafrún segist raunar ekki skilja hvers vegna nefúðinn sé ekki þegar í lausasölu.

„Það fylgir því engin hætta að nota hann. Þú getur ekki misnotað nefúðann. Fólk sem er með þungan vímuefnavanda, og notar þessi ópíóðalyf, vill helst ekki að nefúðinn sé notaður nema að þess sé virkileg þörf því um leið og þú notar nefúðann ferðu í einhvers konar fráhvörf,“ útskýrir Hafrún sem bendir á að nefúðinn hafi gefið góða raun hér á landi sem og annars staðar og bjargað lífi fjölmargra.

„Þetta hefur heldur betur bjargað lífi margra og við hjá Frú Ragnheiði og Ylju neyslurými höfum á einu ári dreift 500-600 nefúðum og við heyrum alltaf mjög reglulega af fólki sem hefur þurft að nota nefúðann til að bjarga vinum eða ástvinum og svo höfum við einnig heyrt á bráðamóttökunni þar sem fólk kemur þangað inn eftir að hafa fengið fyrsta nefúðann frá okkur.“

Hafrún segir að aðstandendur fólks sem haldið er ópíóðafíkn þrái að hafa aðgang að nefúðanum til að geta brugðist rétt við ef slæm tilfelli koma upp.

Ertu bjartsýn á að þetta skref Bandaríkjanna verði til þess að fleiri þjóðir fylgi í kjölfarið?

„Ég vona það innilega því við höfum nú séð það hvernig ópíóðafaraldurinn er að fara með Bandaríkin. Vonandi getum við og aðrar þjóðir lært af því hvað það er mikilvægt að hafa gott aðgengi að Naloxone nefúða.“


Tengdar fréttir

Þekkir þú Nal­oxone og kanntu að nota það?

Árlega látast tugir einstaklinga vegna lyfjaeitrana hér á landi. Á síðasta ári voru andlátin fleiri en nokkru sinni, en þá létust 46 einstaklingar. Algengasta lyfið sem fannst í þeim látnu voru ópíóíðinn Oxycontin og flogaveikilyfið Pregabalin. Níu þeirra látnu voru einstaklingar undir þrítugu, jafn mörg og öll þau er létust í umferðinni hér á landi sama ár.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×