Skoðun

Hver er fram­tíðar­sýn stjórn­valda í ferju­siglingum yfir Breiða­fjörð?

Sigurður Páll Jónsson skrifar

Breiðafjarðarferjan Baldur hefur álíka oft komist í fréttir vegna bilana síðustu árin og stýrivaxtahækkanir Seðlabankastjóra. Vonandi fer verðbólga að hjaðna og ákveðið hefur verið að selja núverandi Baldur.

En hvernig skip er áætlað að komi í staðinn?

Eins og oft hefur komið fram er ferjan Baldur smíðaður 1979, (44 ára gammall) er með einni aðalvél sem erfitt er að fá varahluti í. Skipið er 68,3 m á lengd, 11,6 m ábreidd og er 1,677 brúttótonn. Hann tekur 280 farþega og 49 bíla (6 treilera.)

Stjórnvöld segja að erfitt sé að finna annað skip og aðeins eitt skip frá Noregi sé í boði sem henti. Það ber nafnið Röst og er smíðað árið 1991, (12 árum yngra er Baldur) 32 ára gamalt, 66 m á lengd, 13,4 m á breidd, 2036 búttótonn, tekur 235 farþega og 42 bíla (5 treilera.) Röst er með tveimur vélum sem er framför, en þær eru samsorta og vélin í Baldri sem erfitt hefur verið að fá varahluti í. Að skipta þessu skipi inná fyrir núverndi Baldur, sem tekur færri farþega, færri bíla og færri treilera og er 32 ára gamalt, er líkt og að pissa í skóinn sinn. Af því er skammgóður vermir. Þarfagreining sem gerð var sýndi að minnst 8 TREILERA ferja væri nauðsynleg, helst stærri.

Hafnaraðstaðan (ekjubrýrnar) bæði á Brjánslæk og í Stykkishólmi býður ekki uppá breiðari skip eins og staðan er í dag og þess vegna horfa sjórnvöld til þess að fá skip sem er svipað breitt og Baldur, Röst er 1,8 m breiðari en Baldur og þá væri kannski hægt að notast við núverandi ekjubrýr í höfnunum. Kunnugir aðilar segja að nóg sé í boði af breiðari skipum (ca 16 m breið), en þá þarf að laga hafnarmannvirki samkvæmt því. Þessir sömu aðilar leggja til að það marg borgi sig að aðlaga hafnarmannvirkin að breiðara skipi og þá sé hægt t.d að nota gamla Herjólf, sem Ríkið á í dag, eða finna hentugt skip sem þjónar þeim þörfum sem fyrir liggja með sívaxandi fiskflutningum og mikilli aukningu í ferðafólki.

Fiskeldið á suðurfjörðum Vestfjarða er í vexti og gríðarleg aukning við Ísafjarðardjúp. Steingrímsfjarðarheiði og þröskuldar verða oft ófærir á vetrum, þá eykst umferð suður um Dýrafjarðargöng og Dynjandisheiði. Þó vegurinn um Gufudalssveit á Barðaströnd (Teigskógsleið) er loksins að verða að veruleika mun Klettsháls verða ófær á vetrum eins og reynslan segir.

Fólk og ferskvörur þurfa að berast á öruggan hátt suður og einmitt þessvegna verða stjórn völd að hugsa til framtíðar með öruggar ferjusiglingar yfir Breiðafjörð með skipi sem dugar til þeirrar gríðarlegu aukningar á flutningsþörf sem þegar er staðreynd og þeirri staðreynd að þörfin mun bara aukast.

Ef Baldur er að seljast í sumar er ráðlegt að aðlaga ferjubryggjurnar breiðara skipi strax í haust!

Ég hvet stjórnvöld að ráðast í þær hafnarframkvæmdir bæði á Brjánslæk og í Stykkishólmi sem geta þjónað skipi sem dugar til að anna þeim flutningum frá og til Vestfjarða sem hafa aukist mikið síðustu ár og eiga eftir að aukast enn meira.

Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×