Fótbolti

Messi hafnar launa­lækkun og lík­legast að hann fari í sumar

Sindri Sverrisson skrifar
Lionel Messi mun líklega flytja frá París í sumar.
Lionel Messi mun líklega flytja frá París í sumar. EPA-EFE/YOAN VALAT

Ólíklegt er að Lionel Messi komist að samkomulagi við PSG um nýjan samning og því allt útlit fyrir að hann yfirgefi félagið í sumar. Hann neitar að taka á sig launalækkun eins og PSG fer fram á.

Þetta herma heimildir ESPN en franski miðillinn L‘Equipe fjallaði fyrst um málið.

Viðræður um nýjan samning hafa engu skilað til þessa en frönsku meistararnir vilja að Messi lækki um 25% í launum frá núgildandi samningi sem rennur út í sumar. Sá samningur skilar honum 40 milljónum evra á ári fyrir skatt, sem samsvarar um hálfum milljarði króna á mánuði.

Ekki er þó enn útilokað að Messi haldi kyrru fyrir hjá PSG og ráðgert er að hann og Jorge, faðir hans og umboðsmaður, fundi með fulltrúum PSG síðar í þessum mánuði til að finna lausn.

Fyrr í vetur, fyrir HM í desember þar sem Messi varð heimsmeistari með Argentínu, var talið líklegt að hann myndi skrifa undir nýjan samning við PSG. Sú staða hefur hins vegar breyst.

Hinn 35 ára gamli Messi þótti ekki sýna nægilega mikið í leikjunum við Bayern München þegar PSG féll úr leik í Meistaradeild Evrópu, og hefur ekki fylgt eftir þeirri góðu frammistöðu sem hann sýndi á HM.

Hluti stuðningsmanna PSG gekk svo langt að baula á Messi í síðustu tveimur heimaleikjum og samkvæmt heimildum ESPN sárnaði honum það.

Sömu heimildir segja að Messi haldi öllu opnu varðandi það hvert hann fari í sumar. Pabbi hans hefur rætt um möguleikann á að hann snúi aftur til Barcelona en það gæti reynst snúið vegna fjárhagsstöðu Börsunga. Þá er beðið eftir tilboði frá bandaríska félaginu Inter Miami en Messi ku opinn fyrir því að spila í Bandaríkjunum. Einnig er áhugi á honum hjá sádi-arabíska félaginu Al Ittihad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×