Innlent

Stéttaskipting felist í núgildandi reglum um dýrahald

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. vísir/vilhelm

Inga Sæland formaður Flokks fólksins fer fyrir frumvarpi um breytingu á fjöleignahúsalögum sem myndi gera katta- og hundahald ekki háð leyfi annarra íbúa fjöleignarhúsa. Hún segir mikla stéttaskiptingu felast í núgildandi lögum. 

Undirskriftalisti til stuðnings frumvarpinu var settur á fót í gær og hafa þegar um 3.500 manns skrifað undir. 

„Við erum alltaf að heyra af sorgarsögum í samfélaginu þar sem fólk er orðið eitt eftir jafnvel og það eina sem það hefur í félagsskap er kisinn sinn eða voffinn sem hefur kannski fylgt fólki í mörg ár,“ segir Inga sem var til viðtals á Reykjavík síðdegis:

„Þetta er algjör mismunun, þetta er óréttlátt að einstaklingur þurfi að hafa efni á því að búa í húsnæði með sérbýli eða einbýlishúsi til að geta haldið gæludýr, en þannig er það í dag.“

Inga segir að með breytingunni myndi áfram gilda svokallaður nábýlisréttur. Hún segir að þverpólitísk samstaða sé að baki frumvarpinu á Alþingi.

„Víða þar sem ég hef komið virðist það vera eðlilegur hluti af tilverunni að eiga sinn fjórfætta vin, og að hann geti trítlað með þér nánast hvert sem þú ferð. Hér á landi var auðvitað sett bann á hundahald, að ég held 1924. Það er ekki fyrr en á tíunda áratugnum þegar hægt var að sækja um leyfi til að sækja um hund,“ segir Inga. 

Húsfélög gætu áfram sett sérreglur um dýrahald og bannað þau dýr sem séu óalandi. Í núgildandi lögum þurfa 2/3 íbúa í fjölbýlishúsi að samþykkja dýrahaldið. 

„Það er verið að mismuna fólki harkalega. Venjulega er það sá þjóðfélagshópur sem býr við bágustu kjörin sem er níðst á í allar áttir og líka hvað þetta varðar,“ segir Inga. 

Hún kveðst óviss um hvort að frumvarpið nái fram að ganga.

„Maður gerir sér alltaf svo litlar vonir, þó maður sé undir niðri að vonast til að eitthvað gerist. Sérstaklega þegar maður finnur að það er jákvæð bylgja inni í þingi.“

Viðtalið við Ingu má hlusta á í heild sinni hér að ofan. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×