Fótbolti

Alfons og félagar unnu stórsigur

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Alfons gekk í raðir Twente í ársbyrjun.
Alfons gekk í raðir Twente í ársbyrjun. Vísir/Getty

Alfons Sampsted spilaði síðasta stundarfjórðunginn í stórsigri Twente á Cambuur í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Alfons hóf leik á varamannabekknum þegar Twente fékk botnlið Cambuur í heimsókn en verulegur getumunurinn á liðunum kom snemma í ljós.

Twente leiddi með þremur mörkum gegn engu í leikhléi og úrslitin svo gott sem ráðin.

Alfons var skipt inná á 78.mínútu en þá var staðan orðin 4-0, Twente í vil, og reyndust það lokatölur leiksins.

Twente situr í 5.sæti deildarinnar og útlit fyrir að liðið muni fara í umspil um sæti í Sambandsdeild Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×