Enski boltinn

Leeds dæmt til að greiða fyrrum lánsmanni rúma fjóra milljarða

Smári Jökull Jónsson skrifar
Augustin verður ekki í vandræðum með fjárhaginn á næstunni.
Augustin verður ekki í vandræðum með fjárhaginn á næstunni. Vísir/Getty

Leeds United hefur verið dæmt til að greiða Jean-Kevin Augustin rúma fjóra milljarða króna fyrir brot á samningi. Augustin var á láni hjá Leeds vorið 2020 en aldrei varð af endanlegum félagaskiptum.

Jean-Kevin Augustin var leikmaður RB Leipzig á árunum 2017-2020 en var lánaður til Leeds í janúar 2020. Hluti af lánssamningnum á milli félaganna var að Leeds myndi kaupa Augustin frá þýska félaginu að samningnum loknum fyrir 21 milljón punda ef Leeds myndi tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni um vorið.

Leeds fór upp en var ekki ánægt með framlag Augustin sem spilaði aðeins 48 mínútur þá tæpu sex mánuði sem hann var á láni hjá félaginu. Forráðamenn Leeds ákváðu að bera fyrir sig að það átti að ganga frá samningnum fyrir 30. júní en tímabilinu lauk ekki fyrr en um miðjan júlí vegna kórónuveirufaraldsins.

Stuðningsmenn Leeds myndu eflaust ekki taka Jean-Kevin Augustin fagnandi ef hann léti sjá sig á Elland Road í dag.Vísir/Getty

RB Leipzig var ekki ánægt með þessa afsökun Leeds og höfðaði mál gegn enska liðinu. Dómstóll FIFA úrskurðaði RB Leipzig í hag, að Leeds hefði brotið gegn samningi og þyrfti að greiða umsamið kaupverð. Leeds áfrýjaði málinu en Alþjóðaíþróttadómstóllinn (CAS) komst að sömu niðurstöðu og FIFA.

Félögin náðu hins vegar samkomulagi í desember síðastliðnum um að Leeds skyldi greiða RB Leipzig 15 milljónir punda og héldu flestir að málinu væri þar með lokið.

Því var Jean-Kevin Augustin ekki sammála. Hann höfðaði mál gegn Leeds vegna þeirra launa sem hann taldi sig eiga rétt á hefði hann orðið leikmaður Leeds eins og samið hafði verið um.

Nú hefur dómstóll FIFA úrskurðað í málinu og er úrskurðurinn Augustin í hag. Leeds þarf að greiða honum laun miðað við 90.000 pund í laun á viku í fimm ár. Það gera samtals 24,5 milljónir punda eða rúma fjóra milljarða íslenskra króna.

Leeds hefur áfrýjað úrskurði FIFA en hefur ekki tjáð sig um málið og ætlar ekki að gera það á meðan málið er enn óútkljáð.

Jean-Kevin Augustin gekk til liðs við franska liðið Nantes haustið 2020 þar sem hann skrifaði undir tveggja ára samning. Hann er nú leikmaður Basel í Sviss en þangað fór hann á frjálsri sölu síðasta haust og hefur skorað fjögur mörk í átján leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×