Erlent

Sam­starfs­mennirnir voru skot­mark á­rásarinnar

Kjartan Kjartansson skrifar
Lögreglumaður við heimili morðingjans í Louisville í Kentucky í gær.
Lögreglumaður við heimili morðingjans í Louisville í Kentucky í gær. AP/Timothy D. Easley

Bankastarfsmaður sem skaut fimm manns til bana í Louisville í Kentucky á öðrum degi páska ætlaði sér að myrða samstarfsfélaga sína sérstaklega, að sögn lögreglu. Lögreglumenn felldu byssumanninn.

Árásarmaðurinn var 25 ára gamall. Hann hóf skothríð með árásarriflli í Old National Bank í miðborg Louisville í gær. Fimm manns féllu fyrir hendi hans og fleiri særðust áður en lögreglumenn skutu hann til bana. Náinn vinur Andy Beshear, ríkisstjóra Kentucky, er á meðal þeirra fimm sem létust í skotárásinni.

Fórnarlömbin fimm, þrír karlmenn og tvær konur, voru á aldrinum 40 til 64 ára gömul.

Lögregla segir að maðurinn hafi sérstaklega skotið á samstarfsfólk sitt í bankanum. Tilefnið liggi ekki fyrir. Riffilinn, AR-15-árásarriffil, hafi hann keypti löglega viku fyrir árásina. Byssumaðurinn streymdi beint frá árásinni á samfélagsmiðli, að sögn AP-fréttastofunnar.

Washington Post segir að fyrir árásina hafi morðinginn verið í sambandi við að minnsta kosti einn einstakling og sagst vera í sjálfsvígshugleiðingum og að íhuga að valda skaða.

Skotárásin í Louisville var fimmtánda fjöldamorðið í Bandaríkjunum það sem af er ári. Aðeins tvær vikur eru liðnar frá því að fyrrverandi nemandi skaut þrjú börn og þrjá fullorðna til bana í grunnskóla í Nashville í Tennessee, nágrannaríki Kentucky.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×