Viðskipti innlent

Símon Orri stýrir sölu smart­bíla

Árni Sæberg skrifar
Símon Orri Sævarsson hefur verið ráðinn til Öskju. Auk þess að stýra sölu nýrra rafbíla frá smart mun hann sjá um sölu Mercedes-Benz sendibíla á borð við þann í bakgrunni.
Símon Orri Sævarsson hefur verið ráðinn til Öskju. Auk þess að stýra sölu nýrra rafbíla frá smart mun hann sjá um sölu Mercedes-Benz sendibíla á borð við þann í bakgrunni. Aðsend

Símon Orri Sævarsson hefur verið ráðinn til Bílaumboðsins Öskju. Símon mun gegna starfi sölustjóra smartbíla og Mercedes-Benz sendibíla. Bílaframleiðandinn Smart býður upp á rafknúna bíla og er nýjasta viðbótin í vöruframboði Öskju.

Í fréttatilkynningu um ráðningu Símonar Orra segir að hann hafi starfað hjá Heklu frá árinu 2013 áður en hann færði sig yfir til Öskju. Hann hafi sinnt þar ýmsum störfum en nú síðast starfi vöru- og verkefnastjóra á sölusviði. Þar á undan hafi hann verið viðskiptastjóri fyrirtækjasölu. 

Símon sé með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hafi verið viðloðandi bílasölu frá barnsaldri.

Rafbílar frá smart sjáist senn á götum landins

Þá segir að Askja og bílaframleiðandinn smart hafi hafið samstarf haustið 2021. Mercedes-Benz og Geely, einn stærsti bílaframleiðandi Kína, séu í samstarfi í þróun og framleiðslu þessara nýju bíla sem senn muni sjást á götum landsins. Félögin eigi hvort helmingshlutdeild í smart og markmiðið sé að ná fram því besta frá hvorum heimi.

„Þannig leggur Mercedes-Benz til hönnun að innan og utan en Geely leggur til framleiðsluþekkingu og verksmiðjur. Bílar frá smart eru meðal annars með 5 stjörnur í Euro NCAP og var það einn besti árangur rafbíla í árekstrarprófunum. Sala á smart bílum mun hefjast á næstu vikum og koma fyrstu bílar til landsins síðar á árinu,“ segir í tilkynningu.

Þá segir að Mercedes-Benz sé stærsti framleiðandi atvinnubíla í heiminum og að þeir njóti vinsælda hér á landi eins og víða um heim. Askja bjóði upp á mikið úrval Mercedes-Benz atvinnubíla af öllum stærðum og gerðum og fjölgað hafi mjög að undanförnu rafknúnum atvinnubílum í flotanum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×