Innlent

Bein útsending: Norræn sveitarfélög og loftslagsbreytingar

Kjartan Kjartansson skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarsson, umhverfisráðherra, er á meðal ræðumanna á norrænu ráðstefnunni.
Guðlaugur Þór Þórðarsson, umhverfisráðherra, er á meðal ræðumanna á norrænu ráðstefnunni. Vísir/Arnar

Rætt verður hvernig sveitarfélög á Norðurlöndunum geta undirbúið sig undir áhrif og afleðingar loftslagsbreytinga á norrænni ráðstefnu sem Veðurstofan og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið heldur í dag. Streymt verður frá ráðstefnunni á Vísi og hefst dagskráin klukkan 9:00.

Ísland gegnir formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2023 og af því tilefni stendur Veðurstofa Íslands, í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, fyrir norrænni ráðstefnu um loftslagsbreytingar og aðlögun, NOCCA23. Ráðstefnan fer fram dagana 17. og 18. apríl á Grand hótel auk þess sem hægt verður að fylgjast með í streymi á www.nocca.is.

Á ráðstefnunni í ár verður lögð sérstök áhersla á hvernig sveitarfélög á Norðurlöndunum undirbúa sig undir áhrif og afleiðingar loftslagsbreytinga. Meðal annars verður fjallað um skipulagsgerð með það að markmiði að auka loftslagsþol, áskoranir tengdar hækkandi sjávarstöðu, áhrif loftslagsbreytinga þvert á landamæri og náttúrumiðaðar lausnir sem leið til þess að búa sig undir breyttan heim.

Á viðburðinum verða saman komnir norrænir sérfræðingar í viðfangsefninu frá sveitarfélögum og ráðuneytum, fagstofnunum og fyrirtækjum, háskólum og félagasamtökum. Það er því ljóst að um einstakt tækifæri er að ræða til þess að skiptast á þekkingu og læra af því sem vel hefur verið gert og jafnvel því sem illa hefur farið.

Fyrri dagur ráðstefnunnar samanstendur af fjölbreyttum fyrirlestrum en á seinni deginum gefst fundargestum tækifæri á að taka í áhugaverðum og skemmtilegum vinnustofum þar sem meðal annars verður notast við íslensk tilfelli til þess leita að úrlausnum áskorana. Niðurstöður ráðstefnunnar verða teknar saman í stefnuskjal sem mun nýtast sem leiðarvísir fyrir áframhaldandi norrænt samstarf á þessu sviði.

Dagskrá ráðstefnunnar er að finna á www.nocca.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×