Um­fjöllun, við­töl og myndir: Stjarnan – KA/Þór 24-19 | Garð­bæingar byrja vel

Kristín Björk Ingimarsdóttir skrifar
Akureyringar réðu illa við Britney Cots í kvöld.
Akureyringar réðu illa við Britney Cots í kvöld. Vísir/Diego

Stjarnan vann góðan fimm marka sigur á KA/Þór í fyrstu umferð úrslitakeppni Olís-deildar kvenna í handbolta.

Leikurinn fór heldur hægt að stað og var jafnræði með liðunum. Bæði lið þurftu nokkrar mínútur til þess að koma sér inn í leikinn og er vart hægt að segja að fallegur handbolti hafi verið spilaður. 

KA/Þór var með eins marks forystu 6-7 þegar stundarfjórðungur var liðinn. Restin af fyrri hálfleik var hníf jafn og var staðan 10-10 þegar liðin gengu til klefa í hálfleik.

Úr leik kvöldsins.Vísir/Diego

Það var mun meiri stemmning yfir Stjörnunni þegar að þær mættu inn í seinni hálfleikinn og náðu þær strax ágætis forystu. Þegar rúmlega stundarfjórðungur var liðinn var staðan 17-14.

KA/Þór reyndu hvað þær gátu að finna svör við sterkum varnarleik Stjörnunnar og komu þær sér niður í eitt mark þegar um átta mínútur voru eftir. Þá settu Stjörnukonur í fimmta gír og unnu að lokum fimm marka sigur 24-19.

Sigrinum fagnað.Vísir/Diego

Af hverju vann Stjarnan?

Þær unnu þennan leik í seinni hálfleik. Þær mættu mun ákveðnar til leiks. Heilt yfir var varnarleikur þeirra og markvarsla góð en það vantaði upp á sóknarleikinn sem að þær náðu að laga í seinni hálfleik og vinna leikinn.

Hverjar stóðu upp úr?

Hjá Stjörnunni var Elísabet Gunnarsdóttir öflug, með fimm mörk af línunni. Britney Cots var með fjögur mörk. Darija Zecevic var góð í markinu með 16 bolta varða.

16 skot varin hér á bæ.Vísir/Diego

Hjá KA/Þór var Kristín Jóhannsdóttir atkvæðamest með fimm mörk. Ida Margrethe Hoberg og Rut Jónsdóttir voru með þrjú hvor.

Hvað gekk illa?

Heilt yfir fer þessi leikur seint í sögubækurnar hvað varðar fagurfræði. Leikmenn hjá báðum liðum virtust ekki vera að finna sig og var hálfgert andleysi yfir öllum, sérstaklega í fyrri hálfleik en Stjarnan náði að laga það í seinni.

Það var hart barist í kvöld.Vísir/Diego

Hvað gerist næst?

Liðin mætast fyrir norðan á fimmtudaginn kl 17:00

„Ef að við erum hundrað prósent erum við ógeðslega góðar“

Hrannar Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var sáttur með fimm marka sigur á KA/Þór í úrslitakeppni handbolta.Vísir/Diego

Jafnt var í hálfleik 10-10 en Stjarnan mætti tvíefld til leiks í seinni hálfleik og sigraði að lokum 24-19.

„Ég er mjög ánægður með leikinn, þetta var flottur leikur. Það er gott að ná sigrinum, frábær vörn í dag. Við fengum nokkur hraðaupphlaup og sóknarleikurinn var fínn. Þetta var flottur leikur hjá okkur í dag.“

Stjarnan átti erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik en mætti töluvert betur inn í seinni hálfleikinn og vann þar af leiðandi þennan góða fimm marka sigur.

„“Það var nú ekki mikið skorað, sóknarleikurinn var svolítið að hökta í byrjun. Við vorum að gera svolítið af slæmum mistökum, taka lélegar ákvarðanir. Svo lögum við það og náum upp flottu floti í seinni hálfleik. Vörnin var mjög flott allan leikinn, í fyrri hálfleik voru nokkrir boltar sem að ég hefði viljað sjá varið og klaufa mistök en flottur leikur heilt yfir.“

Hrannar vill sjá stelpurnar mæta eins til leiks á fimmtudaginn.

„Við mættum með gott attitude í dag og við þurfum að halda þessu. Ef að við erum hundrað prósent erum við ógeðslega góðar en ef að við erum 95% þá erum við ekki nógu góðar.“

Þú vonast væntanlega til að sjá sem flesta Stjörnumenn á frekar erfiðum útivelli?

„Heldur betur, ætli rúturnar verði ekki að fara héðan um tíu leytið.“

Myndir 

Vísir/Diego
Vísir/Diego
Vísir/Diego
Vísir/Diego

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira