Lífið

Gerði grín að svip kærustunnar þegar hún fékk fullnægingu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ung kona hafði áhyggjur af því að sofa hjá karlmanni á ný eftir að fyrrverandi kærasti hennar gerði grín að fullnægingarsvip hennar.
Ung kona hafði áhyggjur af því að sofa hjá karlmanni á ný eftir að fyrrverandi kærasti hennar gerði grín að fullnægingarsvip hennar. Getty

Ung kona leitaði ráða hjá kynlífssérfræðingnum og rithöfundinum Tracey Cox eftir að fyrrverandi kærastinn hennar gerði grín að andlitssvip hennar þegar hún fékk fullnægingu. Konan óttaðist að líðan hennar myndi hafa áhrif á kynlíf í sambandi seinna.

„Fyrrverandi kærastinn minn gerði alltaf grín að svipnum sem ég gerði þegar ég fékk fullnægingu. Í dag er ég mjög meðvituð um sjálfa mig og hef áhyggjur af því að það hafa áhrif á kynlíf með framtíðar maka,“ segir konan í bréfi sem Cox birtir á vefsíðu þeirrar síðar nefndu.

Að sögn Cox er algengt að fólk hafi áhyggjur af svipbrigðum sínum í kynlífi þar sem fyrirmyndin kemur oft úr kvikmyndum, jafnvel klámi, þar sem höfuðið kastast aftur, hárið fullkomið og nokkrar svitaperlur leka af enninu. Sú fyrirmynd eigi sér þó enga stoð í raunveruleikanum.

Segir kærastann líklega fullan af öfund

„Ég hef sé fjöldann af alvöru fullnægingarsvipum. Fæstir líta út eins og fólkið í kvikmyndum,“ segir Cox sem vann að þáttaröð um vandamál sem koma upp í kynlífi hjá pörum. Þættirnir voru sýndir í Bretlandi og  Bandaríkjunum. 

Þá lýsir hún raunverulegum andlitum við fullnægingu sem rauðum og sveittum með skakka munna.

„Kynlíf snýst ekki um að líta fallega út heldur um losta, ástríðu og tilfinningar,“ segir Cox. 

Hún bætir við að þeir sem geri grín að fullnægingarsvip annarra séu líklega fullir af öfund vegna getu þeirra til að sleppa takinu í augnablikinu.

„Vertu þakklát fyrir að geta sleppt takinu og láttu slíkar athugasemdir ekki eyðileggja fyrir þér.“


Tengdar fréttir

Saflát kvenna: Hvað er það að skvörta?

„Það er alltaf erfitt að vera að bera saman fullnægingar, svolítið eins og að bera saman sársauka. En ef þú spyrð konur sem hafa upplifað skvört-fullnægingar þá lýsa þær henni yfirleitt sem mjög kröftugri og djúpri fullnægingu, en það er samt sem áður mjög einstaklingsbundið,“ segir Sigga Dögg kynfræðingur í viðtali við Makamál.

Bréfið: 69 ára og upplifir besta kynlíf ævi sinnar

Eftir að Makamál birtu umfjöllun og viðtöl um tantranudd á dögunum barst okkur póstur frá lesanda. Innihaldið var kynlífsreynslusaga hans eftir skilnað og hvernig hann komst á þann stað að vera núna, 69 ára gamall að upplifa besta kynlíf ævi sinnar.

Rúmfræði: Heimagerð kynlífsleikföng

Hver segir að þú þurfir að eyða formúgu í kynlífsleikföng ef þig langar að krydda aðeins upp á kynlífið? Það er ýmislegt sem leynist á heimilinu sem hægt er að nota sem kynlífsleikföng sem fæst okkar höfum hugmyndaflugið í.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×