Enski boltinn

Þriggja ára bann vegna kyn­þátta­níðs í garð leik­manna ­sinna

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
John Yems hafði ekki þjálfað í tíu ár þegar hann tók við Crawley Town árið 2019.
John Yems hafði ekki þjálfað í tíu ár þegar hann tók við Crawley Town árið 2019. Steve Bardens/Getty Images

Rasistinn John Yems, fyrrverandi þjálfari enska knattspyrnuliðsins Crawley Town, hefur verið dæmdur í þriggja ára bann frá fótbolta vegna hegðunar sinnar er hann þjálfað Crawley. Upphaflega var bannið til 18 mánaða en hefur nú verið lengt.

Enska knattspyrnusambandið áfrýjaði dómnum yfir Yems en til stóð að hann mætti ekki að koma að fótbolta með einum eða öðrum hætti í 15 mánuði. Gekk það eftir og var bannið lengt í þrjú ár. Gildir það nú til 5. janúar 2026. Um er að ræða lengsta bann vegna kynþáttaníðs í sögu enska knattspyrnusambandsins.

Hinn 63 ára gamli Yems stýrði Crawley Town frá 2019 til 2022. Ku hann hafa sýnt af sér kynþáttafordóma allan þann tíma. Meðal annars þurftu svartir leikmenn að nota annan klefa en aðrir leikmenn. Kallaði hann leikmenn sem áttu ættir að rekja til Mið-Austurlanda til að mynda hryðjuverkamenn eða „karrý-ætur.“

Yems var upprunalega sendur í leyfi í apríl á síðasta ári eftir að hann var ásakaður um kynþáttaníð frá árinu 2019. Var hann rekinn nokkrum vikum síðar.

Crawley Town er í 22. sæti ensku D-deildarinnar, þremur stigum fyrir ofan fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×