Íslenski boltinn

Tvö lið sækja markvörð til Bandaríkjanna

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Valentina Bonaiuto
Valentina Bonaiuto ÍBV

Tvö lið í Bestu deildinni í fótbolta hafa sótt sér markmann til Bandaríkjanna.

ÍBV hefur samið við Valent­inu Bonaiuto um að leika með liðinu í Bestu deildinni í sumar.

Valentina er markvörður sem er frá Venesúela en kemur til Vestmannaeyjaliðsins frá Bandaríkjunum þar sem hún lék síðast í háskólaboltanum þar í landi.

Hún mun keppa um markmannsstöðuna við Guðnýju Geirsdóttir í sumar.

Þá hefur Melissa Anne Lowder fengið leikheimild með Þór/KA en hún kom til landsins á dögunum eftir að hafa samið við Akureyrarliðið fyrr í vetur.

Melissa er 26 ára gömul og var einnig að spila í Bandaríkjunum en í atvinnumannadeildinni með liðum á borð við Utah Royals, Chicago Red Stars og San Diego Waves.

Keppni í Bestu deildinni hefst á þriðjudag þar sem ÍBV fær Selfoss í heimsókn en Þór/KA hefur leik á miðvikudag með heimsókn í Garðabæ gegn Stjörnunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×