Fótbolti

Willum skoraði í sigri Go Ahead Eagles

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Willum Þór Willumsson skoraði fyrra mark Go Ahead Eagles í dag.
Willum Þór Willumsson skoraði fyrra mark Go Ahead Eagles í dag. Vísir/Getty

Willum Þór Willumsson skoraði fyrra mark Go Ahead Eagles er liðið vann góðan 2-0 sigur gegn Fortuna Sittard í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Willum kom heimamönnum í forystu strax á 17. mínútu leiksins og reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins. Staðan var því 1-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Heimamenn bættu svo öðru marki við þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka og niðurstaðan varð því 2-0 sigur Go Ahead Eagles.

Willum og félagar sitja nú í tíunda sæti deildarinnar með 36 stig eftir 30 leiki og eru enn í harðri baráttu um sæti í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×