Íslenski boltinn

Ísak Andri: Erum með öflugt vopnabúr í sóknarleiknum

Hjörvar Ólafsson skrifar
Ísak Andri Sigurgeirsson hefur farið vel af stað í sumar. 
Ísak Andri Sigurgeirsson hefur farið vel af stað í sumar.  Vísir/Hulda Margrét

Ísak Andri Sigurgeirsson skilaði svo sannarlega góðu kvöldverki þegar lið hans, Stjarnan, bar sigurorð af HK, 5-4, í þriðju umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í kvöld. Ísak Andri lagði upp þrjú mörk og skoraði eitt sjálfur. 

„Við náðum loksins að nýta betur þau færi sem við erum að skapa og það var mjög gaman að spila þennan leik. Sóknarleikurinn hefur verið góður í fyrstu leikjunum í sumar og það var áframhald á því í þessum leik,“ sagði Ísak Andri kampakátur. 

„Vopnabúrið okkar í sóknarleiknum er fjölbreytt og öflugt. Við erum bæði með unga og hungraða leikmenn og reynslumikla leikmenn í góðri blöndu. Það er gott að vera komnir á blað og nú er bara að byggja á þessu,“ sagði kantmaðurinn knái. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×