Sport

Tólf ára Ís­lands­meistari vill verða sú besta í heimi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Garima Nitinkumar Kalugade með bikarinn og ásamt hinum verðlaunahöfunum í hennar flokki.
Garima Nitinkumar Kalugade með bikarinn og ásamt hinum verðlaunahöfunum í hennar flokki. Tennissamband Íslands - TSÍ

Garima Nitinkumar Kalugade er aðeins tólf ára gömul en náði því engu að síður um helgina að verða Íslandsmeistari kvenna í tennis.

Hún vann fráfarandi Íslandsmeistara í úrslitaleiknum en fyrsta fullorðinsmótið vann hún í fyrra þá aðeins ellefu ára.

Garima var í viðtali hjá Ríkissjónvarpinu í gær og þar leyndi sér ekki að hún hefur mikinn metnað til að ná langt og hún er líka óhrædd við að opinbera risastór markmið sín.

„Þetta er alveg ný tilfinning, öðruvísi en að vera yngri flokka leikmaður. En þetta er ekki búið því mig langar að verða aðeins betri, mikið betri,“ sagði Garima í viðtalinu við RÚV en hún hefur æft tennis frá því hún var fimm ára.

Garima æfir fjórum sinnum í viku og mætir eldsnemma á morgnana fyrir skóla, um eða fyrir klukkan sex og svo aftur seinni partinn eftir skóla. Hún segir ekkert mál að vakna svona snemma. „Nei, því ég gerði það á Indlandi og held því bara áfram,“ sagði Garima.

Garima er líka staðráðin í að ná sem lengst í íþróttinni.

„Mig langar að vera númer eitt í heiminum og vinna fullt af stórmótum. Ég vil láta taka eftir mér. Mig langar að verða miklu betri en Roger Federer og Rafael Nadal," sagðu Garima.

Það gerist þó ekki yfir eina nótt og mun kalla á mikla vinnu. Það eru enn sex ár í átján ára afmælið og því hefur hún tímann með sér.

„Já, það mun taka langan tíma en ég er að hugsa til langframa. Íslandsmótið er bara lítið en að ná árangri í heiminum er stórt. Þannig að ég þarf bara að bíða og halda áfram að æfa," sagði Garima við RÚV en það má sjá viðtalið hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×