Innlent

Ein­angrun dragi ekki úr líkum á að fangar endur­taki brot sín

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Margrét Valdimarsdóttir er afbrotafræðingur.
Margrét Valdimarsdóttir er afbrotafræðingur. egill aðalsteinsson

Afbrotafræðingur segir að ef koma eigi í veg fyrir að fangar fari hættulegri út í samfélagið að afplánun lokinni þá verði að huga að betrun og stuðningi í fangelsum. Einangrun sé versta úrræðið til að draga úr líkum á að fangar endurtaki brot sín.

Í Kompás fjölluðum við um úrræðaleysi þegar kemur að andlega veikum föngum en í dag eru þeir oft einangraðir frá öllum þar sem þeir eiga erfitt með samneyti við aðra fanga og engin önnur úrræði í boði. Þeir fá ekki viðeigandi aðstoð og því hætta á að þeir fari aftur út í samfélagið hættulegri en áður.

Afbrotafræðingur segir einangrun eitt versta úrræði sem hægt er að beita ef litið er til betrunar.

„Ef þú ætlar að draga úr líkum á því að viðkomandi endurtaki brot sín eftir að afplánun lýkur þá er félagsleg einangrun í raun og veru það versta,“ segir Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur.

Margrét segir ljóst að það vanti úrræði hér á landi fyrir þá sem eru með þroskaskerðingar eða fatlanir og afplána dóma.

„Og þetta er kannski ekki gríðarlegur fjöldi af föngum, ekki á Íslandi og þess vegna væri kannski ekkert mjög svo erfitt að hafa sérstaka stofnun eða að aðrar heilbrigðisstofnanir gætu einhvern veginn tekið á móti þessum hópi.“

Betrun og stuðningur dragi úr líkum á afbroti

Kompásþátturinn hefur vakið mikla athygli og þótt umdeildur en í honum er rætt er við mann sem er dæmdur fyrir kynferðisbrot. 

Margrét segir umræðuna flókna þar sem betrun sé ekki eina markmið fangelsisrefsingar, heldur sé það einnig markmið að vernda brotaþola og aðra borgara og refsa hinum dæmda.

„En ef við erum bara að hugsa um þennan þátt, að við viljum draga úr afbrotum. Að við viljum koma í veg fyrir að fólk sem kemur út úr fangelsi, vegna þess að það fær enginn lífstíðardóm á Íslandi, fólk kemur úr fangelsi - ef við viljum bara draga úr fleiri brotum þá verðum við að huga að betrun og þá verðum við að huga að stuðningi.“


Tengdar fréttir

„Ég er al­einn allan daginn mamma“

Í fangelsum er mjög veikt fólk sem ætti undir öllum kringumstæðum að vera í sértækum úrræðum. Þetta er andlega veikt fólk með þroskaraskanir og geðsjúkdóma. Fólk sem höndlar á engan hátt aðstæðurnar í fangelsi eða samneyti við aðra fanga og er þess vegna oft einangrað frá öllum á öryggisgöngum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×