Erlent

12 ára hælisleitandi aflaði 60 milljóna króna fyrir bágstödd börn

Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar
Sænsk börn selja Maíblómið fyrir að meðaltali 15.000 íslenskar krónur og fá því um 1.500 krónur í sölulaun. Murhaf hefur selt blóm fyrir andvirði 60 milljóna íslenskra króna og sér því fram á að fá andvirði 6 milljóna í eigin vasa.
Sænsk börn selja Maíblómið fyrir að meðaltali 15.000 íslenskar krónur og fá því um 1.500 krónur í sölulaun. Murhaf hefur selt blóm fyrir andvirði 60 milljóna íslenskra króna og sér því fram á að fá andvirði 6 milljóna í eigin vasa. Johann Nilsson / Getty Images

12 ára hælisleitandi frá Eþíópíu hefur aflað bágstöddum börnum í Svíþjóð meira en 50 milljóna íslenskra króna með merkjasölu. Hann varð fyrir árásum fullorðinna kynþáttahatara þegar hann byrjaði að selja merkin, en hefur nú selt fleiri merki en nokkur annar í sögunni.

Murhaf Hamid er 12 ára drengur frá Eþíópíu. Hann og fjölskylda hans eru hælisleitendur í Svíþjóð og bíða þess að örlög þeirra verði ákveðin.

Mætti fordómum og hatri

Murhaf ákvað í síðustu viku að taka þátt í sölu á Maíblóminu, þá selja börn í Svþjóð barmmerki og allur ágóðinn rennur til þess að hjálpa bágstöddum börnum í Svíþjóð.

Það byrjaði ekki vel, fullorðnir hreyttu í hann ókvæðisorðum á götum úti og sögðu að hann ætti ekkert með að vera að selja Maíblómin, hann væri litaður útlendingur. Ein vinkona fjölskyldunnar sá hvað Murhaf varð niðurdreginn af þessum viðtökum og setti færslu á samfélagsmiðlana um grimmd hinna fullorðnu. Þá tók nú ekki betra við, til að byrja með. Fullorðið fólk hreytti viðbjóðslegum ummælum í drenginn, kallaði hann öllum illum nöfnum, þar á meðal var fólk í trúnaðarstöðum í flokki Svíþjóðardemókrata, sem hafa löngum verið kallaðir þjóðernissinnar og kynþáttahatarar. Formaður flokksins, Jimmie Åkesson, hefur fordæmt ummælin og segist aldrei hafa orðið vitni að annarri eins framkomu gegn barni.

Gæfan snerist Murhaf í hag

En allt í einu fóru hjólin að snúast og það hratt, nú viku síðar hefur Murhaf selt Maíblóm fyrir andvirði 60 milljóna íslenskra króna, meira en nokkurt barn hefur nokkru sinni gert í 116 ára sögu Maíblómanna. Og hann er á allra vörum og í fréttum allra fjölmiðla í Svíþjóð.

Hann fær sjálfur 10 prósent í sölulaun, en þegar hann byrjaði þá dreymdi hann um að geta keypt sér pizzu fyrir sölulaunin. Hann getur gert gott betur núna, og bágstödd börn í Svíþjóð fá rúmar 50 milljónir í sinn hlut af blómasölu Murhafs.

Hefur veitt honum aukið sjálfstraust

Murhaf segist óska þess að hann gæti keypt sér og fjölskyldu sinni landvistarleyfi fyrir sölulaunin, en að það sé víst ekki hægt. Hann segir í samtali við sænska ríkissjónvarpið að þetta hafi veitt honum aukið sjálfstraust sem vonandi gagnist honum til að standa sig vel í lífinu.

Hér er hægt að sjá viðtal sænska ríkissjónvarpsins við Murhaf.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×