Innlent

Segja ríki og borg spila með fram­tíðar­öryggi lands­byggðarinnar

Árni Sæberg skrifar
Oddvitarnir telja aukna byggð í Skerjafirði ógna öryggi landsbyggðarinnar.
Oddvitarnir telja aukna byggð í Skerjafirði ógna öryggi landsbyggðarinnar. Stöð 2/Arnar

Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í fjórtán sveitarfélögum hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem áform innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um að hefjast handa við jarðvegsframkvæmdir og þar með undirbúning íbúðauppbyggingar í Skerjafirði eru fordæmd. Þau setji framtíð Reykjavíkurflugvallar, og þar með framtíðaröryggi landsbyggðarinnar í uppnám. 

„Áformin ganga gegn þeim loforðum sett voru í samkomulagi milli Reykjavíkurborgar og ríkisins árið 2019 um að tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar þar til nýr flugvöllur sé tilbúin til notkunar. Þar er gert ráð fyrir að rannsóknum ljúki um gerð nýs flugvallar árið 2024 og í kjölfarið verði hafist handa við slíka uppbyggingu reynist það fýsilegur kostur,“ segir í fréttatilkynningu um ályktun sem oddvitarnir munu leggja fram til samþykktar í sveitarstjórnum landsins.

Öruggt innanlandsflug sé mikilvægt búsetuskilyrði landsbyggðanna

Byggð í Skerjafirði muni þrengja enn frekar að Reykjavíkurflugvelli og rýra notagildi hans vegna breytinga á vindafari. Öruggt innanlandsflug sé mikilvægt búsetuskilyrði landsbyggðanna og tryggi atvinnulífinu, heilbrigðisþjónustunni, stjórnsýslunni og íbúum aðgengi að mikilvægri þjónustu sem ætluð er öllum landsmönnum. 

Reykjavíkurflugvöllur sé kerfislega mikilvæg lífæð landsins. Það sé með öllu ótækt að vegið sé að öryggi hans og framtíð með ákvörðun um uppbyggingu í Skerjafirði áður en búið er að tryggja framtíð innanlandsflugvallar með öðrum sambærilegum eða betri hætti. 

Með þessari ákvörðun Innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar sé spilað með framtíðaröryggi og lífsgæði landsbyggðanna hringinn í kringum landið. Þannig sé eining þjóðarinnar rofin.

Ályktun oddvitanna má lesa í heild sinni hér að neðan:

[Sveitarfélagið] lýsir yfir þungum áhyggjum vegna ákvörðun Innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu í Skerjafirði. Með ákvörðuninni er samkomulag ríkisins og Reykjavíkurborgar frá 2019 haft að engu þar sem forsenda þess var að tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar þar til nýr flugvöllur er tilbúinn til notkunar.

Reykjavíkurflugvöllur sinnir mikilvægu hlutverk og er lífæð landsbyggðanna. Með uppbyggingu í Skerjafirði er vegið að framtíð og öryggi landsbyggðanna gagnvart sjúkraflugi og nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sem og aðgengi almennings, atvinnulífi og stjórnsýslu að mikilvægum innviðum.

[Sveitarfélag] skorar á borgarstjórn og Innviðaráðherra að fresta ákvörðuninni þar til að sú vinna sem lagt var upp með í fyrrgreindu samkomulagi sé lokið og framtíðarlausn innanlandsflugs tryggð.

Undir yfirlýsinguna rita eftirfarandi:

  • Heimir Örn Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri
  • Ragnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð
  • Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum
  • Sigríður Guðrún Hauksdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjallabyggð
  • Almar Marínósson, formaður Sjálfstæðisfélags Þórshafnar
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi
  • Freyr Antonsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Dalvíkurbyggð
  • Baldur Smári Einarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Bolungarvík
  • Jóhann Birkir Helgason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ
  • Guðmundur Haukur Jakobsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Húnabyggð
  • Hafrún Olgeirsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi
  • Gauti Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Hornafirði
  • Ásgeir Sveinsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vesturbyggð
  • Gísli Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×