Lífið

Hlutir til að varast í kynlífi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Couple in bed with feet hanging out the covers
Getty

Eins dásamlegt og kynlíf getur verið er mikilvægt að hafa nokkra hluti á hreinu til að geta notið stundarinnar sem best. Eðli máls samkvæmt er listinn ekki tæmandi. 

1. Ekki vanmeta hættuna á kynsjúkdómum

„Ef þú ert að stunda kynlíf utan sambands, án þess að nota smokk, ertu að taka áhættu á að smitast af kynsjúkdómum.“

Getty

2. Ekki nota olíukennd sleipiefni með latex smokkum

„Ef þú notar ekki viðeigandi sleipiefni getur þú fundið fyrir ónotum í kynlífi, sérstaklega þegar kemur að samförum í endaþarm. Sleipiefni eru mismunandi og því er mikilvægt að nota það rétta.“

Olíukennd sleipiefni, þar með talin náttúruleg sleipiefni á borð við ólífuolíu og kókosolíu, geti skemmt smokkinn.

„Ef þú ert að nota smokka, skaltu nota vatnsuppleysanlegt sleipiefni eða silíkon sleipiefni.“

Getty

3. Ekki stinga mat upp í leggöngin

„Grænmeti eða ávextir eiga ekki heima í leggöngum eða endaþarmi. Ástæðan er sú að hluti af matnum getur brotnað af og orðið eftir inni í leggöngunum.“

Það sama á við um endaþarminn, „Þú vilt ekki setja neitt í endaþarminn sem gæti týnst þar inni.“

Getty

4. Ekki þrýsta á maka þinn að klára

„Ef þú einbeitir þér of mikið að því að klára getur það leitt til vandamála í sambandinu. Það getur alltaf gerst að maki þinn nái ekki að fá fullnægingu, og það er allt í lagi.

Þú gætir spurt hvort þú getir aðstoðað maka þinn á meðan viðkomandi reynir að fullnægja sér sjálfur, til dæmis með kossum og strokum.“

Getty

5. Ekki suða um kynlíf

„Ekki suða í maka þínum um kynlíf, það er ekkert eins fráhrindandi. Ef þú getur ekki beðið gætir þú farið afsíðis, inn í herbergi eða í sturtu jafnvel og klárað þig af. Berðu virðingu fyrir því ef makinn er ekki alltaf til í tuskið.“

Getty

Listinn er meðal annars byggður á ábendingum frá kynlífstækjaversluninni Blush.


Tengdar fréttir

Kryddaðu upp á trúboðann

Kynlífsstellingin trúboðinn er ein af þessum hefðbundnu og vinsælu stellingum í svefnherberginu. Pör eiga það til festast í vananum almennt, og á það ekki síður við í rúminu. Kynlífstækjaverslunin Blush setti saman lista af níu hugmyndum sem gætu kryddað upp á stellinguna og gert upplifunina enn betri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×