Íslenski boltinn

Víkingar komust alla leið upp í fjórða sætið á sögulegum lista

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Varnarveggur Víkinga hefur verið öflugur það sem af er í sumar.
Varnarveggur Víkinga hefur verið öflugur það sem af er í sumar. Vísir/Hulda Margrét

Víkingar héldu marki sínu hreinu fram í seinni hálfleik á sínum fimmta leik í Bestu deild karla í fótbolta í ár og því hafa ekki mörg félög náð í sögu efstu deildar karla.

Víkingsliðið fékk loksins á sig mark í 4-1 sigri á Keflavík í gær en þá var Ingvar Jónsson búinn að halda marki sínu hreinu fyrstu 425 mínútur tímabilsins.

Sá sem braut ísinn var Keflvíkingurinn Marley Blair á 65. mínútu leiksins með skoti sem Ingvar hefði kannski átt að verja. Víkingar kvörtuðu þó ekki mikið yfir því enda liðið sem fullt hús á toppi Bestu deildar karla með markatöluna 12-1.

Það eru aðeins þrjú lið sem hafa haldið marki sínu lengur hreinu í upphafi leiktíðar.

Metið er í eigu Framara frá árinu 1990 en markvörður liðsins var Birkir Kristinsson. Framliðið hélt þá hreinu fram í seinni hálfleik á sjötta leik eða alls í 518 mínútur. Framarar urðu Íslandsmeistarar það sumar.

Í öðru sæti er annað Framlið eða lið þeirra frá árinu 1980. Markvörður þess liðs var Guðmundur Baldursson. Fram náði ekki að verða meistari þetta sumar en liðið endaði í 2. sæti deildarinnar.

Í þriðja sætinu eru síðan Valsmenn frá sumrinu 1989 en markvörður liðsins var Bjarni Sigurðsson. Valsmenn náðu ekki að fylgja þessu nógu vel eftir og enduðu bara í fimmta sæti deildarinnar um haustið.

  • Lengst haldið hreinu í upphafi móts í efstu deild:
  • 518 mínútur - Fram 1990
  • 470 mínútur - Fram 1980
  • 446 mínútur - Valur 1989
  • 425 mínútur - Víkingur 2023
  • 396 mínútur - ÍA 1981
  • 318 mínútur - Valur 1991
  • 314 mínútur - Keflavík 1979
  • 302 mínútur - Fram 1988



Fleiri fréttir

Sjá meira


×