Innlent

Ráðherra skammar stjórnvöld vegna iðnmenntunar

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Áslaug Arna, ásamt Fjólu S. Kristinsdóttur, bæjarstjóra í Árborg og Finni Beck, framkvæmdastjóra Samorku á fagþinginu á Selfossi í vikunni.
Áslaug Arna, ásamt Fjólu S. Kristinsdóttur, bæjarstjóra í Árborg og Finni Beck, framkvæmdastjóra Samorku á fagþinginu á Selfossi í vikunni. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Ráðherra í ríkisstjórninni skammast út í stjórnvöld fyrir að sinna ekki iðnmenntun betur í landinu því á sama tíma og ungt fólk hefur áhuga á menntuninni er ekki pláss fyrir það í skólunum, sem sé óboðlegt.

Fagþing Samorku, sem eru Samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi vegna hita-,vatns- og fráveitna í landinu var haldið á fimmtudaginn og föstudaginn á Hótel Selfossi þar sem mörg fróðleg erindi um allt það helsta, sem er efst á baugi í veitumálum voru haldin af ýmsum sérfræðingum.

Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra flutti ávarp og fjallaði þar meðal annars um iðnmenntun, sem ráðherranum er mjög hugleikinn.

„Við þurfum að gæta þess að horfa á iðnmenntunina líka, sem gríðarlegt tækifæri. Að stjórnvöld, sem hafa lagt mikið upp úr því að fleiri sæki í það, þá er auðvitað óboðlegt að okkar hálfu að það sé ekki síðan pláss. Mér finnst það mjög miður að stjórnvöldum tekst of sjaldan að hugsa lengra fram í tímann. Við erum oftast og alltof oft að bregðast við einhverri stöðu núna, slökkva einhverja elda, að setja eitthvað fram, sem snýr að einu kjörtímabili en við verðum að getað tamið okkur að geta hugsað til lengri tíma,” sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Og Áslaug Arna hélt áfram að skjóta á stjórnvöld í ávarpi sínu.

„En á sama tíma megum við ekki vera varðhundar fyrir kerfi, sem er úrelt eða búa til fleiri hindranir inn í atvinnutækifæri en þörf er á hverju sinni.”

Það vakti líka athygli þegar Áslaug Arna minntist á könnun Samtaka iðnaðarins þar sem kemur fram að nú vanti níu þúsund sérfræðinga á næstu fimm árum til ýmissa starfa á Íslandi, ekki síst í raunvísinda- og tæknigreinum.

„Það er hamlandi gagnvart vaxtartækifærum fyrirtækjanna. Bæði þá mannauðurinn, það vantar fólk og svo auðvitað orkumálin,” sagði ráðherra.

Áslaug Arna, ráðherra í ríkisstjórninni, sem flutti ávarp á fagþingi Samorku á Selfossi í vikunni.Magnús Hlynur Hreiðarsson


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×