Innlent

„Staðan er að versna og hún mun versna“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur ásamt fleirum boðað til mótmæla næstkomandi laugardag.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur ásamt fleirum boðað til mótmæla næstkomandi laugardag. Vísir/Vilhelm

Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli næstu helgi vegna aðgerðarleysis stjórnvalda þegar kemur að málefnum heimilanna. Formaður VR segir ástandið minna á árin í kringum hrunið. 

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur boðað til mótmæla á Austurvelli á laugardaginn í næstu viku. Segir hann að hópur fólks sem hafi barist fyrir réttlæti alveg frá hruni standi fyrir þeim en hann er hluti af þeim hópi. 

Ragnar segir að mótmælin séu einungis upphafið og því megi eiga von á enn fleiri mótmælum á næstunni. Hann segir aðgerðarleysi stjórnvalda í ýmsum málum vera fyrir neðan allar hellur.

„Það er alveg sama hvar hún drepur niður. Ef þú slasar þig og þarft að fara á bráðamóttökuna, þarftu að bíða í sex til átta tíma að lágmarki. Þú þarft að bíða vikum eða mánuðum saman eftir tíma hjá lækni. Leigumarkaðurinn, það eru tvö til þrjú hundruð manns sem eru í örvæntingu eftir hverri einustu íbúð sem losnar og það er ekkert sem bendir til annars en að staðan sé að versna. Framkvæmdir á húsnæðismarkaði eru að dragast saman, bankarnir græða meira, fyrirtækin græða meira, en fólkinu blæðir. Þetta er staða sem ég og fleiri erum búin að fá algjörlega nóg af,“ segir Ragnar Þór í samtali við fréttastofu.

Hann segir stöðuna ekki geta gert neitt annað en að versna miðað við hvernig hlutirnir eru að þróast. Fólkið í landinu verði að rísa upp og láta í sér heyra til að breyta þessari vegferð.

„Hér er að eiga sér stað stórkostleg eignatilfærsla, tilfærsla fjármagns frá heimilunum til fjármálakerfisins. Fyrirtækin hafa ekki sýnt neina samfélagsábyrgð. Staðan er bara að versna og hún mun versna.“

Ragnar segir ástandið svipað því hvernig var í kringum hrunið árið 2008.

„Við erum í sjálfu sér að horfa upp á það, sérstaklega eftir nýjustu afkomutölur bankanna, að hér erum við að fara á sama stað og við vorum í eftirmálum hrunsins. Það er tími til kominn að fólkið láti heyra í sér. Því stjórnvöld hlusta hvorki á verkalýðshreyfinguna né aðra þannig vonandi hlusta þau á fólkið í landinu, ef fólkið er tilbúið að rísa upp,“ segir Ragnar Þór.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×