Innlent

Höfuð­kúpu­brotnaði eftir hnefa­högg á djamminu

Bjarki Sigurðsson skrifar
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi manninn í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi manninn í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Vísir/Vilhelm

Karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hrinda manni fyrir utan skemmtistað á Reykjanesi í október árið 2021. Hlaut árásarþoli höfuðkúpubrot og alvarlega varanlega áverka á höfði.

Atvikið átti sér stað eftir lokun skemmtistaðarins en samkvæmt vitnum hafði árásarþoli verið utan í árásarmanninum allt kvöldið. Sá síðarnefndi hafi augljóslega lítið viljað með hann hafa. 

Í skýrslu lögreglu sagði árásarmaðurinn að þeir þekktust ekki mikið en væru kunningjar af djamminu. Árásarþoli hafi verið mjög æstur og árásargjarn umrætt kvöld en eftir lokun skemmtistaðarins hafi hann verið í því að ýta í fólk fyrir utan staðinn. Bað hann manninn um að hætta því og í kjölfar þess reis ágreiningur þeirra á milli sem endaði með því að árásarmaðurinn kýldi árásarþola með krepptum hnefa undir hökuna. 

Við höggið féll maðurinn aftur fyrir sig og skallaði jörðina. Við það hlaut hann blæðingu eða mar í og við heila og höfuðkúpubrot. Blæðingin var svo mikil að hún olli þrýstingi á heilavef og því þurfti að framkvæma bráðaaðgerð á manninum til að tæma út blæðingu og létta á þrýstingi. 

Fela áverkarnir í sér hugræna skerðingu, hafa áhrif á vitræna getu, skerðingu á athygli, minni og málfærni, veikleika í stýrifærni og erfiðleika með einbeitingu.

Árásarmaðurinn var samvinnuþýður við rannsókn lögreglu og fyrir dómi játaði hann brot sitt skýlaust. Sagði lögmaður hans að þetta eina högg hafi þó haft ófyrirséðar afleiðingar. Afleiðingarnar hafi í raun verið óhappatilvik þar sem aðferðin í sjálfu sér hafi ekki verið hættuleg. 

Héraðsdómi Reykjaness þótti sex mánaða skilorðsbundin fangelsisvist rétt í málinu og er honum gert að greiða árásarþola tvær milljónir króna í miskabætur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×