Innlent

Kulnun ekki skil­greindur sjúk­dómur og því ekki haldið utan um töl­fræði

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Samkvæmt svörum heilbrigðisráðherra er ekki haldið utan um tölfræði er varðar kulnun.
Samkvæmt svörum heilbrigðisráðherra er ekki haldið utan um tölfræði er varðar kulnun. Vísir/Egill

Kulnun hefur ekki verið skilgreind sem sjúkdómur og því eru ekki til tölur um umfang tilvísana og vottorða vegna kulnunar hjá Landlæknisembættinu. Af sömu ástæðu liggur ekki fyrir tíðni greininga á kulnun eða þróunar þeirra.

Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Diljá Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um kulnun.

Þar segir að kulnun hafi ekki verið skilgreind sem sjúkdómur af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Hins vegar sé kulnun skilgreind sem ástand tengt vinnuumhverfi og byggi á þremur skilmerkjum; mikilli þreytu eða örmögnun, áhugaleysi og/eða neikvæðni gagnvart vinnu og minnkuðum afköstum.

Þess má geta að samkvæmt VIRK voru um 11 prósent allra beiðna sem bárust starfsendurhæfingasjóðnum á tímabilinu nóvember 2020 til október 2021 tengd kulnun. Þar af uppfylltu 3,8 prósent beiðna viðmið Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar fyrir kulnun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×