Fótbolti

Paris Saint-Germain hafi sett sig í samband við Mourinho

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
José Mourinho gæti tekið við PSG í sumar.
José Mourinho gæti tekið við PSG í sumar. Silvia Lore/Getty Images

Luis Campos, ráðgjafi franska stórveldisins Paris Saint-Germain, hefur rætt við Jorge Mendes, umboðsmann José Mourinho, um möguleikann á því að fá Portúgalann í þjálfarastól PSG fyrir næsta tímabil.

Mourinho er í dag þjálfari Roma í ítölsku úrvalsdeildinni og núgildandi samningur hans við félagið rennur út sumarið 2024. Ef marka má grein franska miðilsins RMC Sport um málið á Campos hins vegar að hafa viðrað möguleikann á því að Mourinho láti af störfum hjá Roma í sumar og taki við franska stórliðinu.

Þjálfari PSG í dag er hinn franski Christophe Galtier. Galtier tók við liðinu fyrir yfirstandandi tímabil, en árangurinn undir hans stjórn hefur ekki þótt viðundandi og því er ekki ólíklegt að forráðamenn PSG reyni að skipta um mann í brúni í sumar.

PSG er með sex stiga forskot á toppi frönsku úrvalsdeildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir og því verður að teljast líklegt að liðið tryggi sér þann titil enn eina ferðina. Undir stjórn Galtiers mistókst liðinu hins vegar að vinna frönsku bikarkeppnina, og þá féll liðið úr leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×