Lífið

Vill leiðrétta allan misskilning um erótískt nudd

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Saga Lluvia segist fá fjölda fyrirspurna vikulega frá karlmönnum í leit að erótísku nuddi.
Saga Lluvia segist fá fjölda fyrirspurna vikulega frá karlmönnum í leit að erótísku nuddi. Vísir/Vilhelm

„Ég fæ iðulega spurningar um hvenær sé laust í erótískt nudd og hvernig sé best að bóka,“ segir Saga Lluvia Sigurðardóttir eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Losta. Það sé ekki þjónusta sem fyrirtækið bjóði upp á. Ráðleggingum á heimasíðunni er líklega um að kenna.

Saga segist fá vikulegar fyrirspurnir um erótískt nudd og þeim fjölgi iðullega þegar nær dregur helgi. Saga nýtti sér samfélagsmiðla í dag til að leiðrétta misskilninginn.

„Þetta eru aðallega karlmenn sem hafa ýmist samband símleiðis eða í versluninni sjálfri.

Þegar mennirnir átta sig á því að ekkert erótískt nudd sé í boði fylgir stundum spurning um hvar slíkt nudd sé að fá,“ segir Saga.

Að sögn Sögu telur hún líklegt að misskilningur hafi komið upp eftir að grein birtist á heimasíðu verslunarinnar undir heitinu Erótískt nudd 101.

„Mig grunar að þessi misskilningur tengist greininni, því að fyrirspurnum fór að fjölga frá því í febrúar. Tilgangur hennar var birt í þeim tilgangi að fólk gæti notað hana sem leiðarvísi fyrir aukinni stemningu heima fyrir,“ segir Saga. 

Hún veltir því fyrir sér hvort misskilningurinn gæti einnig verið tengdur verslun Losta sem er staðsett í póstnúmeri 101.

„Kannski ætti ég að breyta heitinu á greininni,“ segir Saga og hlær.


Tengdar fréttir

Mælir með að geyma snípinn þar til síðast

Æfingin skapar meistarann er setning sem flestir kannast við og á hún ekki síður við í kynlífi en öðru, hvað þá í munnmökum. Ítarlegar leiðbeiningar um píkuunað sem ættu að geta gagnast kynlífsiðkendum eru aðgengilegar á samfélagsmiðlum kynlífstækjaverslunarinnar Losta. 

Hlutir til að varast í kynlífi

Eins dásamlegt og kynlíf getur verið er mikilvægt að hafa nokkra hluti á hreinu til að geta notið stundarinnar sem best. Eðli máls samkvæmt er listinn ekki tæmandi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×