Íslenski boltinn

Bjóða upp á fótsnyrtingu á fyrsta heimaleik sumarsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Afturelding spilar undir stjórn Magnúsar Más Einarssonar og með Kaleo auglýsngu á búningnum.
Afturelding spilar undir stjórn Magnúsar Más Einarssonar og með Kaleo auglýsngu á búningnum. @aftureldingknattspyrna

Afturelding byrjaði tímabilið vel í Lengjudeild karla í fótbolta og vann 3-1 útisigur á Selfossi. Í kvöld er komið að fyrsta heimaleik liðsins og að venju eru Mosfellingar hugmyndaríkir þegar kemur að umgjörð um heimaleiki sína.

Afturelding bauð upp á alls konar þjónustu í tengslum við heimaleiki sína í fyrrasumar og þeir ætla að halda því áfram í ár.

Fyrsti heimaleikurinn er klukkan 19.30 í kvöld en þá koma Þórsarar frá Akureyri í heimsókn. Leikurinn fer reyndar ekki fram í Mosfellsbænum heldur á Framvellinum í Úlfarsárdal.

Það breytir því samt ekki að Mosfellingar bjóða upp á öðruvísi þjónustu fyrir stuðningsmenn sína.

Að þessu sinni verður í boði að kaupa fótsnyrtingu frá Fótaaðgerðarstofu Mosfellsbæjar. Áhorfendur geta þar með fengið fótsnyrtingu og horft á fótboltaleik á sama tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×