Skoðun

Lítil söfn geta haft mikil áhrif

Ester Sigfúsdóttir skrifar

Þann 18. maí næstkomandi er Alþjóðlegi safnadagurinn haldinn hátíðlegur og yfirskriftin þetta árið er: Söfn, sjálfbærni og vellíðan. Söfn um land allt nýta þess vegna tækifærið til að velta fyrir sér þemanu og skoða hvort þau séu að gera gagn á þessu sviðum.

Norður í Steingrímsfirði er lítil sjálfeignarstofnun, Sauðfjársetur á Ströndum, viðurkennt safn og menningarmiðstöð í héraðinu. Aðstandendur eru stoltir af safninu sínu og telja að gildi þess fyrir samfélagið, mannlíf og menningu sé langt umfram það sem búast mætti við, sérstaklega miðað við veltu og starfsmannahald.

Sauðfjársetrið hefur allt frá stofnun fyrir rúmum 20 árum staðið fyrir fjölda menningarverkefna á svæðinu, auk þess að vera mikilvægur viðburðahaldari. Það flytur inn á svæðið fjölda lista- og fræðifólks á landsvísu á hverju ári, bæði í tengslum við Náttúrubarnahátíðina, en líka í tengslum við aðra viðburði og rannsóknir. Um leið er kappkostað við að byggja á mannauði í héraðinu og heimafólk tekur virkan þátt í verkefnum.

Safnið leggur áherslu á að starfa með ungu lista- og fræðafólki á og frá svæðinu, einkum á sviði myndlistar, hönnunar, kvikmyndagerðar og þjóðfræðirannsókna. Verkefnin eru bæði stór og smá. Yfir veturinn hittast um það bil 30 íbúar reglulega til að spila félagsvist í safninu og svipaður fjöldi kemur stundum á sögustund, bókakynningu eða í sunnudagskaffi. Stundum er húsið troðfullt þegar tekið er á móti sirkus eða öðru listafólki, innlendu og erlendu, stundum eru málþing, ráðstefnur, tónleikar eða leikhús á Sauðfjársetrinu eða haldin veisla. Allt hefur þetta jákvæð áhrif á vellíðan íbúa, öflugt félagslíf og menningarstarf á svæðinu verður ekki metið til fjár.

Einnig hefur verið verið unnið í verkefnum tengdum umhverfisvernd og sjálfbærni og þar ber hæst rekstur Náttúrubarnaskólans sem er viðamikið hliðarverkefni við safnið. Hápunkturinn í því starfi er Náttúrubarnahátíð sem er haldin eina helgi á sumri, næsta hátíð verður 14.-16. júlí. Þar er kynngimögnuð dagskrá alla helgina, listafólk og sagnamenn mætir á svæðið og alls konar snillingar halda smiðjur fyrir fjölskyldufólkið sem mætir á hátíðina. Þemað í þessum verkefnum er náttúrutúlkun og fræðsla, fléttuð saman við menningararf og skemmtun. Hátíðin er aðgengileg öllum og aðgangur er ókeypis þessa daga, öll geta tekið þátt á sínum forsendum. Þarna læra gestir fjölmargt fróðlegt um sambúð fólks og náttúru.

Unnið er með skólum á svæðinu að fleiri verkefnum og tekið á móti nemendum í safnfræðslu í tengslum við sérsýningar og Náttúrubarnaskólann. Unnið er með Leikfélagi Hólmavíkur að uppsetningum leiksýninga og síðustu árin hefur Sauðfjársetrið breyst í leikhús tvo mánuði á ári. Samfélagslegur ávinningur af starfseminni er því augljós, auk jákvæðra áhrifa á ímynd svæðisins og sjálfsmynd íbúanna.

Það er líka beinlínis markmið Sauðfjársetursins að hafa sem allra mest jákvæð áhrif í því samfélagi sem það starfar í, bæði á mannlíf og menningu, en einnig jákvæð margfeldisáhrif fyrir atvinnulíf. Tengslin við heimafólk og nærsamfélag eru því sterk.

Söfn sinna fjölbreyttum verkefnum, taka þátt í margvíslegu samstarfi og standa fyrir menningarviðburðum sem skipta máli fyrir samfélagið. Söfn um allt land, stór og smá, geta haft mikil áhrif á nærsamfélag sitt. Þau auka vellíðan og stuðla að fjölbreyttu mannlífi og geta vakið okkur til umhugsunar um sjálfbærni. Við óskum öllum innilega til hamingju með safnadaginn!

Höfundur er Ester Sigfúsdóttir, forstöðukona Sauðfjárseturs á Ströndum



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×