Lífið

Mis­munandi leiðir til að stunda kyn­líf án sam­fara

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Kynlíf er svo miklu meira en innsetning typpi og leikfanga í píku eða rass.
Kynlíf er svo miklu meira en innsetning typpi og leikfanga í píku eða rass. Getty

Elskendur eiga það til að festast í sömu rútínunni í kynlífi eins og svo mörgu öðru í lífinu. Kynlíf getur verið leikur og skemmtun án þess að snúast eingöngu um samfarir eða innsetningu typpis eða leikfanga í leggöng eða rass.

Lykillinn að fjölbreytni og til að viðhalda stuðinu er að einbeita sér að öllum líkamanum. Á vef Psychology Today koma fram ýmsar hugmyndir að ánægjulegri og innilegri stundu án samfara með eða án kynlífstækja.

1. Munnmök

Fyrir marga eru munnmök ómissandi hluti af kynlífi eða forleik. Sérstaklega fyrir konur þar sem þær eru líklegri til að fá fullnægingu á þann veg heldur en í samförum. 

Getty

2. Strokur og nudd

Skapaðu rómantíska stund með makanum og kveiktu á kertum, settu á notalega tónlist. Komdu makanum á óvart með erótísku nuddi eða ljúfum strokum og góðri nuddolíu. 

Getty

3. Kossar á munn og líkama

Ástríðufullir kossar á munn eða ljúfir kossar um líkamann getur vakið um kynferðislega spennu, nánd og aukna ánægju. Talið er að kossar geta verið frábærir fyrir heilsuna og dregið úr streitu.

Hafðu þó í huga að vera búin/n að bursta tennur eða fá þér myntu áður en kossaflensið hefst.  

Getty

4. Sameiginleg sjálfsfróun

Sjálfsfróun með maka getur verið góð leið til að krydda upp á kynlífið. Kanna eigin líkama og til að leiðbeina maka um það sem þú vilt getur reynst árangursríkt fyrir sambandið.

Getty

5. Hlutverkaleikir og kynórar

Öll búum við yfir mismunandi löngunum, þrám, og jafnvel fantasíum þegar kemur að kynlífi. Hlutverkaleikir og mismunandi búningar hafa verið vinsælir hvort sem það að klæðast hjúkrunar- eða slökkviliðsbúningi svo dæmi sétu tekin. Eins getur tilhugsunin um að stunda kynlíf á almannafæri aukið spennu á milli para.

Getty

6. Mismunandi kynlífstæki

Mikil aukning og umræða hefur verið um kynlífstæki síðastliðin ár og ættu allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi í verslunum landsins í leit að aukinni skemmtun í kynlífið.

Getty

7. Símakynlíf

Hvort sem pör búa í sitt hvoru landinu, eru á ferðalagi eða til að krydda upp á kynlífið getur símakynlíf verið góð hugmynd til að búa til nánd í sambandinu. Í fyrstu getur samtalið verið óþægilegt og jafnvel vandræðalegt en á að sjálfsögðu að hafa það sem markmið að eiga ánægjulega stund. Ef til vill hefur slíkt verið vinsælt á tímum heimsfaraldursins þegar annar aðilinn var í eingangrun eða sóttkví.

Woman in lingerie holding phone

8. Sexting (e. senda kynferðisleg skilaboð)

Að senda kynferðisleg skilaboð til maka í myndformi eða rituðu málið getur verið hluti af forleik í gengum daginn. Myndir af sjálfum sér eða jafnvel af nýju undirfötunum fyrir kvöldið. Það getur þó verið ágætt að fullvissa sig um að barn hafi ekki fengið símann að láni eða að skilaboð birtist óvænt í öðrum tækjum sem eru tengd símanum.

Getty

Aðal málið er að njóta og hafa gaman!


Tengdar fréttir

Kennslu­mynd­band í að finna G-blettinn vand­fundna

Fullnæging kvenna í gegnum leggöng getur reynst mörgum erfið og er talið að aðeins átján prósent kvenna fái fullnægingu á þann veg, án annarrar örvunar líkt og á sníp eða með kynlífstækjum.

Kryddaðu upp á trúboðann

Kynlífsstellingin trúboðinn er ein af þessum hefðbundnu og vinsælu stellingum í svefnherberginu. Pör eiga það til festast í vananum almennt, og á það ekki síður við í rúminu. Kynlífstækjaverslunin Blush setti saman lista af níu hugmyndum sem gætu kryddað upp á stellinguna og gert upplifunina enn betri.

Mælir með að geyma snípinn þar til síðast

Æfingin skapar meistarann er setning sem flestir kannast við og á hún ekki síður við í kynlífi en öðru, hvað þá í munnmökum. Ítarlegar leiðbeiningar um píkuunað sem ættu að geta gagnast kynlífsiðkendum eru aðgengilegar á samfélagsmiðlum kynlífstækjaverslunarinnar Losta. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×