Fótbolti

Hildur og María úr leik í bikarnum

Smári Jökull Jónsson skrifar
Úr leik Fortuna Sittard.
Úr leik Fortuna Sittard. Twitter@FortunaVrouwen

Hildur Antonsdóttir og María Ólafsdóttir Gros voru báðar í byrjunarliði Fortuna Sittard sem mætti í dag Twente í seinni leik liðanna í undanúrslitum hollenska bikarsins í knattspyrnu.

Staðan var erfið fyrir lið Fortuna Sittard eftir fyrri leik liðanna en þar fór Twente með 5-0 sigur af hólmi. Lið Twente lenti í öðru sæti deildakeppninnar í Hollandi en Twente og Ajax hafa verið í sérflokki á tímabilinu. Fortuna Sittard endaði í þriðja sæti, átján stigum á eftir Twente.

Leikurinn í dag var fremur ójafn líkt og sá fyrri. Twente náði forystunni strax í fyrri hálfleik og bætti svo þremur mörkum við eftir hlé. Lokatölur 4-0 og Twente vann einvígið samanlagt 9-0.

Hildur og María eru báðar á sínu fyrsta tímabili með Fortuna Sittard en María gekk til liðs við félagið í janúar en Hildur síðasta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×