Innlent

Smá­hveli rak á land við Sand­gerði

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Hvalurinn er sennilega nýrekinn á land. Ekki var komin nein rotnunarfýla af honum.
Hvalurinn er sennilega nýrekinn á land. Ekki var komin nein rotnunarfýla af honum.

Dautt smáhveli rak á land í Sandgerðisfjöru. Líklegt er talið að það hafi rekið á land um helgina.

Óvíst er af hvaða tegund smáhvelið er sem rak nýverið á land í fjörunni í Sandgerði. Fannst það nálægt fiskeldsvinnslu Samherja og Ný-fisks við Hafnargötuna.

„Hann lítur út fyrir að hafa verið dauður áður en hann rak á land, svona miðað við útlitið á honum,“ segir Sigurður Þór Magnússon, sem fann hvalinn. Gerir hann ráð fyrir að hvalurinn hafi ekki legið þarna lengi.

„Hann hefur líklega rekið á land um helgina. Það var engin lykt af þessu, allavega ekki þar sem ég stóð,“ segir Sigurður.

Grindhvalur, höfrungur eða hnísa

Hvalurinn hefur ekki verið greindur en heimamenn telja að um grindhval sé að ræða, frekar en höfrung eða hnísu.

Einar Friðrik Brynjarsson, hjá umhverfissviði Suðurnesjabæjar, segir að bænum hafi ekki enn borist tilkynning um hvalrekann. Hann hafi þó frétt af þessu og ætli sér að athuga með hvalinn og hvað sé best að gera í stöðunni.

„Fyrir nokkrum árum komu heilu torfurnar upp á land hjá okkur. Ég man ekki eftir að smáhveli hafi rekið á land á síðustu árum,“ segir Einar Friðrik.

Leyfi þarf fyrir nýtingu

Samkvæmt verklagsreglum stjórnvalda um aðkomu opinberra aðila þegar hvali rekur á land tekur Umhverfisstofnun ákvörðun um hvernig skal staðið að förgun dauðra dýra. Hvort hræið sé látið vera eða fargað í samræmi við leiðbeiningar.

Embætti yfirdýralæknis setur skilyrði hvað varðar nýtingu á kjötinu af dýrinu, til manneldis eða dýrafóðurs. Hafrannsóknarstofnun og Náttúrufræðistofnun taka ákvörðun um nýtingu beina í samráði við landeigendur.


Tengdar fréttir

83 hvali rekið á land í 34 atburðum

Það sem af er ári hefur 83 hvali rekið á land í 34 atburðum. Þar af eru 59 grindhvalir og sjö búrhvalir. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í morgun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×