Innlent

Vel­ferðar­málin efst á for­gangs­lista raun­særrar Sam­fylkingar

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Jóhann Páll segir Samfylkingarfólk ekki kippa sér upp við gagnrýni frá Viðreisn eða Sjálfstæðisflokknum.
Jóhann Páll segir Samfylkingarfólk ekki kippa sér upp við gagnrýni frá Viðreisn eða Sjálfstæðisflokknum.

„Samfylkingin hefur gjörbreytt sinni forgangsröðun eftir að Kristrún Frostadóttir varð formaður flokksins og við erum bara mjög raunsæ á Evrópumálin,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar um gagnrýni Sigmars Guðmundssonar á afstöðu flokksins.

Sigmar, þingmaður Viðreisnar, reit aðsenda grein sem birtist á Vísi í morgun þar sem hann sakaði Kristrúnu um að endurtaka kunnulegt stef úr Valhöll um að Evrópumálin væru ekki á dagskrá.

Jóhann Páll segist fagna því að Sigmar og Viðreisn vilji halda Evrópumálunum á lofti en önnur mál séu ofarlegar á lista núna hjá Samfylkingunni.

„Aðalmálið núna er að Samfylkingin vill sameina þjóðina um velferðarmálin,“ segir Jóhann Páll. „Það sem Viðreisn og Valhöll skilja ekki er að Samfylkingin er jafnaðarmannaflokkur. Við leggju ofuráherslu á eflingu velferðarkerfisins; heilbrigðismálin, almannatryggingar. Sameina þjóðina um þessi brýnu verkefni sem er hægt að ráðast í tafarlaust. Verkefni sem við getum skilað af okkur strax á næsta kjörtímabili.“

Jóhann Páll segir Sigmar virðast upptekinn af skoðanakönnunum um afstöðu fólks til Evrópusambandsaðildar en það liggi fyrir Samfylkingunni að koma hreint og beint fram við fólk og gefa því skýran valkost.

Evrópusambandsaðild sé ekki eitthvað sem sé að fara að gerast á næstunni og þá segist hann aðspurður ekki telja að annar gjaldmiðill sé töfralausn við verðbólgunni og efnahagsvandanum sem Íslendingar glíma við núna.

„Það er kannski ekkert nýtt að við séum ekki með sömu nálgun í Evrópumálunum,“ segir Jóhann Páll um ólíka afstöðu Samfylkingarinnar og Viðreisnar, sem báðir hafa talað fyrir aðild að Evrópusambandinu.

„Fyrir nokkrum árum vildi Viðreisn til dæmis taka upp svokallað myntráð; það er eitthvað sem ég er alveg innilega ósammála. Og fyrir síðustu kosningar töluðu þau fyrir samningsbundinni fastgengisstefnu, með samningi við evrópska seðlabankann. Það er algjörlega óraunhæft.“

Jóhann Páll ítrekar að hann fagni því þó að Viðreisn sé nú að tala fyrir fullri aðild að Evrópusambandinu.

„Það er okkur algjörlega að meinalausu að þau og Valhöll séu að skensast í okkur, við höldum bara okkar striki,“ segir hann. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×