Fótbolti

Tap niðurstaðan í lokaleik Messi fyrir PSG

Aron Guðmundsson skrifar
Lionel Messi hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Paris Saint-Germain
Lionel Messi hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Paris Saint-Germain Vísir/Getty

Paris Saint-Germain tapaði í kvöld gegn Clermont Foot á heimavelli í lokaumferð frönsku úrvalsdeildarinnar. 

Fyrir leik var ljóst að Messi og spænska varnartröllið Sergio Ramos myndu yfirgefa herbúðir PSG eftir tímabilið og voru þeir báðir í byrjunarliði liðsins í kvöld. 

Ramos gerði sér lítið fyrir og skoraði fyrsta mark leiksins á 16. mínútu eftir stoðsendingu frá Vitinha og aðeins fimm mínútum síðar bætti Kylian Mbappé við öðru marki PSG úr vítaspyrnu. 

Gestirnir í Clermont Foot rönkuðu þá við sér og náðu inn tveimur mörkum fyrir lok fyrri hálfleiksins og stóðu leikar því jafnir í hálfleik, 2-2.

Það var síðan á 63. mínútu sem Grejohn Kyei bætti við þriðja marki Clermont í leiknum og kom liðinu um leið yfir í fyrsta sinn en hann hafði í fyrri hálfleik brennt af vítaspyrnu. 

Reyndist þetta lokamark leiksins og kvöddu því Messi og Ramos Parísarborg með tapi í lokaleik sínum.

Messi spilaði 41 leik á nýafstöðnu tímabili með PSG, skoraði 21 mark og gaf tuttugu stoðsendingar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×