Innlent

Við­búið að menn „dusti rykið af mál­skjölunum“

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Gylfi segir viðbúið að menn fari með málið fyrir dóm.
Gylfi segir viðbúið að menn fari með málið fyrir dóm. Stöð 2/Egill

Næstu mánaðamót munu vænt mánaðarleg réttindi félagsmanna LSR lækka um tæp 10 prósent og lífeyrisgreiðslur þeirra sjóðsfélaga sem ekki eru í bakábyrgð ríkissjóðs lækka um rúm 4 prósent.

Um er að ræða síðari hluta aðgerða LSR til að bregðast við hækkandi lífaldri íslensku þjóðarinnar, segir á heimasíðu LSR.

„Fjármála- og efnahagsráðuneytið gaf út nýjar lífslíkutöflur í árslok 2021 sem byggðu á nýrri aðferðafræði. Með henni er gert ráð fyrir að Íslendingar lifi töluvert lengur en áður hafði verið talið og yngri kynslóðir muni lifa lengur en eldri kynslóðir,“ segir á heimasíðu LSR.

Lífeyrissjóðir hafi þurft að bregðast við þessu og gera ráð fyrir að greiða sjóðsfélögum lífeyri í lengri tíma en áður var reiknað með. Um sé að ræða þungbæra aðgerð fyrir sjóðinn en nauðsynlega engu að síður.

Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, segir þetta þó aðeins hálfa söguna. Áhættan af breytingum af þessu tagi hafi til ársins 2017 legið hjá launagreiðanda á opinbera markaðnum en þá hafi bakábyrgðin verið tekin af stórum hluta launþega bótalaust.

Hann rifjar upp að mál sem höfðað var að frumkvæði Kennarasambandsins en þar sem engin efnisleg niðurstaða fékkst þar sem réttindin hefðu ekki enn verið skert.

„Nú er hins vegar búið að ákveða að skerða þau svo að væntanlega eru einhverjir lögfræðingar þegar búnir að dusta rykið af málsskjölunum og setja sig í stellingar. Þetta er stórmál enda tekist á um mjög háar fjárhæðir og grundvallarspurningar, m.a. um hvort ríkið geti með lagasetningarvaldi sínu breytt þegar áunnum lífeyrisréttindum starfsmanna sinna,“ segir Gylfi á Facebook.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×