Fjárfesting InstaVolt flýtir fyrir orkuskiptum í bílaflota Íslands InstaVolt 7. júní 2023 12:06 InstaVolt tók í gær í notkun stærsta hraðhleðslugarð Íslands en hann er staðsettur við Aðaltorg í Reykjanesbæ,. F.v. eru Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, Adrian Pike, stjórnarformaður InstaVolt og HS Orku, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri Aðaltorgs, og Heike Bergmann, stjórnarmeðlimur í HS Orku. InstaVolt, öflugasta hraðhleðslufyrirtæki Bretlands, fyrirhugar umtalsverðar fjárfestingar í innviðauppbyggingu fyrir rafbíla á Íslandi.
Þannig mun fyrirtækið styðja við loftslagsmarkmið Íslands um kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. InstaVolt tók í gær í notkun stærsta hraðhleðslugarð Íslands en hann er staðsettur við Aðaltorg í Reykjanesbæ, skammt frá Keflavíkurflugvelli. Alls hafa verið settar upp 20 hleðslustöðvar við Aðaltorg og eru þær knúnar af HS Orku, sem er samstarfsaðili InstaVolt í verkefninu, en HS Orka er þriðji stærsti orkuframleiðandi landsins. Gert er ráð fyrir 200 nýjum InstaVolt hleðslustöðvum víðs vegar um land á næstu tveimur árum. Áætlanir InstaVolt eru lóð á vogarskálar þess að Ísland nái að framfylgja banni við skráningu nýrra bensín- og díselbíla sem taka á gildi 2030. Þær styðja vel við innviðauppbyggingu vegna rafbíla hérlendis, jafnt fyrir íbúa sem ferðamenn, og stuðla þannig að aukinni sjálfbærni í ferðalögum um landið. Fyrr í dag kynnti InstaVolt fulltrúum íslenskra bílaleiga hvernig áætlanir fyrirtækisins geta stutt við frekari rafvæðingu bílaleiguflota landsins. Alls hafa verið settar upp 20 hleðslustöðvar við Aðaltorg í Reykjanesbæ. Gert er ráð fyrir 200 nýjum InstaVolt hleðslustöðvum víðs vegar um land á næstu tveimur árum. Tölur frá árinu 2022 sýna að markaðshlutdeild rafbíla á Íslandi er í kringum 60%, sem er það hæsta í heimi næst á eftir Noregi. Um 14% af farþegabílaflota landsins var orðinn rafvæddur árið 2022. Ísland hentar vel til rafbílavæðingar þar sem akstursleiðir eru ekki langar miðað við það sem þekkist erlendis og nægt framboð er af endurnýjanlegri raforku á hagkvæmu verði. Auk þess er allt jarðefnaeldsneyti flutt inn til landsins. Rafbílar skipta því verulegu máli í þeirri vegferð að standa við loftslagsskuldbindingar Íslands í Parísarsamkomulaginu, en áætlað er að samgöngur á landi séu um 20% af allri kolefnislosun landsins. Verkefni InstaVolt á Íslandi markar tímamót fyrir fyrirtækið, sem hefur til þess einskorðað sig við Bretlandsmarkað, og hefur InstaVolt því stigið fyrsta skrefið inn á alþjóðlega markaði. Áætlanir InstaVolt gera ráð fyrir 200 nýjum hraðhleðslustöðum hér á landi á næstu tveimur árum en fyrirtækið er þekkt fyrir öruggar, þægilegar og snertilausar greiðslukortalausnir. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, var viðstaddur opnunarathöfnina við Aðaltorg í gær og sagði m.a. af því tilefni: „Íslandi hefur tekist vel til í orkuskiptum í samgöngum á landi og er í öðru sæti á eftir Noregi í sölu á rafbílum og tengiltvinnbílum. Eigi Ísland að ná markmiðum ríkisstjórnarinnar um full orkuskipti fyrir árið 2040 verðum við að hraða orkuskiptunum. Fjölgun hraðhleðslustöðva ætti að auðvelda okkur að ná þeim markmiðum okkar.“ Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, sagði af sama tilefni: „Við vildum tryggja okkur samstarfsaðila með langa og farsæla reynslu af hraðhleðslumöguleikum og því varð InstaVolt fyrir valinu. Við fögnum komu þeirra á íslenska markaðinn og hlökkum til að taka þátt í enn frekari innviðauppbyggingu með fyrirtækinu vítt og breytt um landið.“ Adrian Pike, stjórnarformaður InstaVolt og jafnframt stjórnarformaður HS Orku, sagði við athöfnina: „Ég er mjög stoltur af þeim áfanga sem InstaVolt og HS Orka hafa náð hér í dag. Framúrskarandi verkefnateymi beggja fyrirtækja hafa skapað tækifæri sem styðja vel við innviðauppbyggingu fyrir rafbílaflota landsins. Samningurinn um verkefnið felur í sér verulegar fjárfestingar hér á landi af hálfu InstaVolt og hann hefur lagt grunninn að einstöku samstarfi sem leiðir til þess að enn fleiri fólksbílar á Íslandi verða knúnir með 100% endurnýjanlegri raforku. Við hlökkum til að fylgja þessu eftir með röð hraðhleðslustöðva vítt og breytt um landið.“ Upplýsingar um InstaVolt má finna á instavolt.is. Upplýsingar um HS Orku má finna á hsorka.is.
Orkuskipti Orkumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Fleiri fréttir Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Greiðsluáskorun VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Nýjung í bílaviðskiptum á netinu – Bland og Frágangur í samstarf Polestar 4 kominn í Polestar Reykjavík – umhverfisvænasti bíll Polestar Einstakt tækifæri til að sjá einn merkasta sportbíl sögunna - Porsche 911 Dakar Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2024 - kosning Kolefnasporlausir bílar fyrir 2030? Polestar er með plan Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Tölum um neytendamál! Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur GreenCoat er umhverfisvænasta litaða stálklæðningin sem völ er á Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Einblína á trausta ávöxtun til langs tíma Fjölbreytt vöruúrval og ein bestu verð hérlendis Toyota sýnir úrvals fyrirtækjabíla á Verk og vit Nýr Toyota Yaris Hybrid frumsýndur á laugardag Leið eins og stjórnanda geimskips Hver verður iðnaðarmaður ársins 2024? Sjá meira